Heilbrigðismál - 01.01.1972, Síða 19
Meðferð matvæla
Fjöldi sjúkdóma breiðist út frá sýklum,
sem komast inn í líkamann gegnum munn-
inn. Þessar lífverur geta margfaldast með
furðulegum hraða í hæfilega röku og hlýju
umhverfi. Fæðan, sem við nærumst á, getur
orðið kjörið heimkynni fyrir þær. Sýklarnir,
sem valda blóðkreppusótt, lifrarbólgu, tauga-
veiki og lömunarveiki, berast með manninum
sjálfum og skiljast út með úrgangsefnum
líkamans. Snerting fæðutegunda með óþvegn-
um höndum á sinn þátt í að útbreiða þessa
sjúkdóma.
Venjulegt kvef, inflúenza og berklasýklar
geta hafst við í nefi og hálsi.
Dýr bera með sér ýmsar skaðlegar lífverur,
sem geta komizt í matvæli og smitað mann-
*n á þann hátt. Flugur og meindýr, sem
komast í skemmd matvæli eða önnur sýkt
efni, geta borið með sér smit og valdið út-
breiðslu sjúkdóma. Jafnvel ryk flytur með
sér sýkla.
Varnir
Hreinlæti er öruggasta ráðið til að hindra
útbreiðslu sjúkdóma frá matvælum.
Notið undantekningarlaust sápu og vatn til
að þvo hendurnar, eftir að hafa verið á sal-
erni áður en þér snertið matvæli.
Forðist að hósta, ræskja yður eða hnerra
yfir matinn.
fréttabréf um heilbrigðismál
Lokið skurðum, sárum, sprungum og fleiðr-
um með vatnsþéttum umbúðum.
Matvœlageymsla og matvœlagerð
Sýklum fjölgar bráðast í 16° og allt upp
í 60° hita á C. Fæðutegundir, sem hættir til að
skemmast á að geyma í kæliskápnum. Hættu-
legir sýklar geta leynst í hráu kjöti. Flestir
drepast þeir við suðu. En gætið þess að hrátt
kjöt spilli ekki soðnu kjöti, sem ekki á að hita
aftur. Séu leifar af kjöti eða kjötréttum illa
hitaðar eða aðeins yljaðar, getur það valdið
gífurlegri fjölgun á sýklum, sem leynast í
þeim.
Heima fyrir
Endurskoðið öll eldhússtörfin.
Þvoið matarílátin úr snarpheitu vatni.
Handleikið ekki bollabarmana og rennið
ekki fingrunum eftir hnífblöðunum. Notið
ekki óhreinar þurkur. Notið aldrei eldhús-
vaskinn til að þvo ílát heimilisdýranna eða
svuntur og annan fatnað barnanna. Kemísk
efni, hreinsi- og þvottaefni, skordýraeitur má
aldrei hafa þar, sem þau geta spilt fæðuteg-
undum.
Lokaðar geymslur eða skápar ættu alltaf að
vera til fyrir allan borðbúnað og matarílát,
þegar þau eru ekki í notkun.
Þvoið hendurnar oft og alltaf áður en þér
fáist við mat.
19