Heilbrigðismál - 01.06.1985, Qupperneq 6
Aðalfundur Krabbameinsfélags íslands 1985:
Aukin starfsemi í nýja húsinu
Aðalfundur Krabbameinsfélags
Islands var haldinn 31. maí s.l. For-
maður félagsins, dr. Gunnlaugur
Snædal, flutti skýrslu stjórnar, sem
nú var gefin út, í fjölriti, í fyrsta
sinn. Fram kom, að umsvif og starf-
semi félagsins aukast stöðugt og við
flutninginn í Skógarhlíð 8, húsið sem
þjóðin gaf, hefur öll aðstaða ger-
breyst til hins betra. Helstu starfs-
þættirnir eru leit að krabbameinum,
frumurannsóknir, krabbameins-
skráning og útgáfu- og fræðslustarf.
Nýir starfsþættir bætast við. Á árinu
var komið á fót bókasafni þar sem
lærðir og leikir eiga í framtíðinni
möguleika á að nálgast upplýsingar
og heimildir um krabbamein.
Röntgendeild var einnig tekin í
notkun, þar sem teknar eru röntgen-
myndir af brjóstum kvenna í því
skyni að finna krabbamein á byrjun-
arstigi (mammography). Þá gat for-
maður um framtíðarverkefni og er
krabbameinsleit í neðri hluta melt-
ingarvegar eitt þeirra. Annað eru
lífsýnarannsóknir. Þykir ísland kjör-
ið til að stunda slíkar rannsóknir.
Nefnd hefur verið stofnuð til að
vinna að þessu máli. Árið 1986 verð-
ur „Norrænt átak“, þar sem öll
krabbameinsfélögin á Norður-
löndum munu safna fé til grunn-
rannsókna og er forseti íslands, Vig-
dís Finnbogadóttir, verndari söfn-
unarinnar hérlendis.
Ný lög voru samþykkt á fundinum
og felast breytingarnar aðallega í því
að auðvelda aðildarfélögum að
tengjast heildarsamtökunum, hafa
skýrari ákvæði um stjórnun og rekst-
ur og síðast en ekki síst að taka
fjármálin fastari tökum.
Gunnlaugur Snædal var endur-
kjörinn formaður, en aðrir í stjórn
eru: Erlendur Einarsson, Tómas
Árni Jónasson, Hjörtur Hjartarson,
Vigdís Magnúsdóttir, Ólafur Örn
Arnarson, Sigurður Björnsson,
Almar Grímsson, Gunnar Hansson,
Sigursteinn Guðmundsson, Björgvin
Lúthersson, Matthías Johannessen
og Auður Guðjónsdóttir. Forstjóri
félagsins er dr. G. Snorri Ingimars-
son og framkvæmdastjóri Halldóra
Thoroddsen.
Hjörtur Hjartarson var heiðraður
í tilefni af sjötugsafmæli í vor, og
þakkað hið mikla starf að málefnum
félagsins, en hann hefur átt sæti í
stjórn þess frá 1952.
Krabbameinsfélaginu hafa borist
margar góðar gjafir þar á meðal fé til
kaupa á ferðaröntgentæki, sem
félagið hyggst kaupa til að þjóna
landsbyggðinni.
Aðalfundur Krabbameinsfélags
íslands samþykkti eftirfarandi álykt-
un um tóbaksmál:
Adalfundur Krabbameinsfélags ís-
lands 1985 fagnar samþykkt og gild-
istöku nýrra tóbaksvarnalaga og tel-
ur að með þeim sé stigið mikilvœgt
skref í heilbrigðismálum þjóðar-
innar.
Fundurinn heitir á landsmenn að
sameinast um að gera lögin að virku
tœki í barátt unnifyrir reyklausu um-
hverfi og betra heilsufari almennings.
Jafnframt vill fundurinn taka undir
það sjónarmið að fyrirkomulag á
innflutningi, dreifingu og verðlagn-
ingu tóbaks eigi að miða að því að
halda tóbaksneyslu í lágmarki. —ss.
Krabbameinsleit
í meltingarvegi
undirbúin
Nýlega voru Krabbameinsfélaginu
afhentar 800 þúsund krónur frá
Oddfellowstúkunni Þormóði goða, í
tilefni af 25 ára afmæli hennar á s.l.
vori.
Júlíus Bjömsson afhendir Gunn-
laugi Snædal gjöf frá Oddfellow-
um. Atli Steinarsson, formaður
Þormöðs goða, er einnig á mynd-
inni.
Krabbameinsfélagið hefur verið
að undirbúa leit að forstigsbreyting-
um og krabbameinum í neðri hluta
meltingarvegar, en þessi tegund
krabbameina gerist æ algengari hér á
landi. Verður með þessu farið að
sinna skipulegri krabbameinsleit hjá
körlum, en íslenskar konur hafa not-
ið skipulegrar leitar að legháls-
krabbameini um tveggja áratuga
skeið. Verkefni þessu munu tengjast
vísindarannsóknir, þar sem reynt
verður að varpa ljósi á aðdraganda
og myndun krabbameinsvaxtar.
Vegna öflugs stuðnings Odd-
fellowstúkunnar Þormóðs goða
verður hægt að hefja þessa þjónustu
miklu fyrr en ella, jafnvel síðar á
þessu ári. —si.
6 HEILBRIGÐISMÁL 2/1985