Heilbrigðismál - 01.06.1985, Qupperneq 23
HEILBRIGÐISMAL / Jóhannes Long
sem fara að vaxa milli sjónhimnu og
æðahimnu (sjá myndir). Þetta er al-
varlegasta mynd sjúkdómsins sem
oftast endar með myndun örvefs í
miðgróf og varanlegri skerðingu á
skarpri sjón. Rýrnun í miðgróf með
æðaleka eða blæðingum kallast
blotarýrnun, gagnstætt þurrrýrnun,
sem er mun algengari.
Fram á síðustu ár hefur engin
meðferð komið að gagni við þessum
sjúkdómi. Vítamín og æðavíkkandi
lyf hafa verið reynd án árangurs.
Með tilkomu leysigeislameðferðar í
augnlækningum hefur tekist að
halda sjúkdómnum í skefjum í viss-
um tilvikum, þ.e. þegar leki og blæð-
í leysitækinu á Landakotsspítala
er eytt nýæðum undir sjónhimn-
unni, til þess að stöðva ellirým-
unina.
ingar frá nýæðum eru til staðar.
Þessi aðferð hefur rutt sér til rúms
síðastliðin ár og hafa rannsóknir
staðfest notagildi hennar. Meðferð
verður þá að hefjast fljótlega eftir að
einkenna sjúkdómsins verður vart.
Leysigeislum er beint á nýæðar og
þeim eytt. Það er margt sem gerir
leysimeðferð erfiða í framkvæmd.
Tækjabúnaður er dýr og viðhaldið
einnig. Erfitt er að velja sjúklinga til
meðferðar. Oft leita þeir of seint til
augnlæknis og kemur leysimeðferð
þá ekki að gagni. Gera þarf sérstaka
rannsókn með æðamyndatöku á
augnbotnum til að finna nýæðarnar.
Rannsókn þessi krefst flókins tækja-
búnaðar og rekstrarkostnaður er
mikill.
Leysimeðferð við rýrnun í mið-
gróf sjónu hefur verið beitt á
nokkrum sjúklingum á göngudeild
augndeildar Landakotsspítala síðan
1983. Enn er of snemmt að meta
heildarárangur meðferðar með
vissu. Á árinu 1984 voru 19 sjúkl-
ingar meðhöndlaðir, oft með góðum
árangri, að því er virðist.
Hin nýja aðferð er enn á tilrauna-
stigi og kemur aðeins hluta sjúklinga
með rýrnun í miðgróf að gagni.
Þetta er þó stórt framfaraskref og
áframhaldandi rannsóknir á þessu
sviði gefa von um betri framtíð.
Loks má geta Sjónstöðvarinnar, sem
bráðlega verður opnuð. Þangað
munu sjúklingar með skerta sjón
geta leitað til þjálfunar í notkun
sjónhjálpartækja. Verður þessi
þjálfun m.a. fólgin í að æfa sjúklinga
með ellirýrnun í miðgróf að beita
hliðarsjóninni við lestur og fínni
vinnu.
Ingimundur Gíslason er augn-
læknir á Landakotsspítala.
HEILBRIGÐISMÁL 2/1985 23