Heilbrigðismál - 01.06.1985, Page 34
HANDHÆG BÓK UM LYF
Að vexjast
vínandanum
Vínandi er það vímuefni
sem mestu tjóni hefur vald-
ið þjóðinni fyrr og síðar.
Reynsla síðustu hundrað
ára hefur sýnt okkur svo að
ekki verður um villst að fyr-
irbyggjandi aðgerðir, sem
miða að því að draga úr
neyslu áfengis í hvaða mynd
sem er, eru áhrifamestu
leiðirnar til að draga úr því
tjóni sem neysla vínanda
veldur einstaklingum og
þjóðinni í heild. Bætt og
aukin meðferð drykkju-
sjúkra getur aldrei komið í
stað þeirra.
Að dulbúa áfengi sem
fæðu eða svaladrykk eykur
hættu þá, sem af því stafar.
Úr grein eftir Jóhannes
Bergsveinsson yfirlækni,
Morgunblaðinu, febrúar 1985.
Nær þúsund
læknar
Læknaskrá 1985 kom út í
lok apríl, á vegum Land-
læknisembættisins. Par eru
á skrá 862 læknar sem hafa
lækningaleyfi hér á landi og
133 læknakandídatar sem
eiga ófengið lækningaleyfi,
en voru við framhaldsnám
eða bráðabirgðastörf hér
eða erlendis um síðustu ára-
mót. Af þessum 995 lækn-
um og kandídötum eru 124
konur. Konurnar eru tæp
10% læknanna en 29%
læknakandídatanna.
Að sögn landlæknis er
ekki vitað nákvæmlega hve
margir þessara lækna eru
erlendis, en sennilega eru
þeir hátt á þriðja hundrað.
Bókaútgáfan Vaka hefur
gefið út bók sem ber heitið
„íslenska lyfjabókin". Petta
er aðgengileg handbók fyrir
almenning um öll þau lyf,
sem skráð eru á Islandi,
innihald þeirra, notkun,
áhrif og aukaverkanir.
Þetta er í fyrsta sinn sem
almenningi gefst kostur á
svo ítarlegum upplýsingum
um lyf, sem hér eru notuð.
Meginuppistaða bókar-
innar er skrá yfir öll lyf,
sem hlotið hafa viðurkenn-
ingu heilbrigðisyfirvalda
hér á landi. Er þar miðað
við 1. janúar 1985. Lyfjun-
um er raðað í stafrófsröð,
getið um framleiðanda
þeirra, efni sem þau inni-
halda, form og gerð, notk-
un, algengustu skammta-
stærðir, þekktar aukaverk-
anir, sem þau gætu haft í för
með sér, ráð varðandi
geymslu lyfjanna og aðrar
ábendingar og varnaðarorð
eftir því sem nauðsyn kref-
ur. Sérstaklega er þess getið
ef lyfið hefur áhrif á konur
á meðgöngutíma og hvort
eitthvað ber að varast í sam-
bandi við brjóstagjöf.
Auk lyfjaskrárinnar og
skýringanna, er í bókinni
fjölbreytttur almennur
fróðleikur um lyf, fram-
leiðslu þeirra og mismun-
andi gerðir. Pá er einnig
fjallað um líkamann og
starfsemi hans og einnig
hvað verður um lyfin í lík-
amanum, eitranir af völd-
um lyfja og rétt viðbrögð í
slíkum tilvikum.
í bókarauka eru þættir
um einstaka lyfjaflokka,
skrá um flokkun lyfja eftir
verkun þeirra og listi yfir
framleiðendur lyfja.
íslenska lyfjabókin er 336
síður í stóru broti. Höfund-
ar bókarinnar eru læknarnir
dr. Helgi Kristbjarnarson
og dr. Magnús Jóhannsson,
svo og Bessi Gíslason lyfja-
fræðingur.
Meíra en
tuttugu böm
í Heilbrigðismálum hefur
birst grein sem fjallaði um
fjölbyrjur (3. tbl. 1983, bls.
25). Var þá meðal annars
getið um þrenn hjón sem
staðfest var að hefðu eignast
20 börn. Jafnframt var óskað
upplýsinga um fleiri slík
dæmi. Hrafnkell Óskarsson
læknir hefur sent eftirfarandi
um formæður sínar.
„A Bassastöðum í
Strandasýslu bjuggu fram á
miðja öldina föðurafi minn
og amma, Áskell Pálsson
(f. 1875, d. 1951) og Guð-
ríður Jónsdóttir (f. 1874, d.
1947). Þau eignuðust 22
börn þar af tvisvar tvíbura.
Einungis 13 þessara syst-
kina náðu þó fullorðins-
aldri.
Langalangamma mín í
móðurætt var Sigríður Guð-
mundsdóttir (f. 1821, d.
1911) kennd við Skarfanes
á Landi, þar sem hún bjó
með eiginmanni sínum
Magnúsi Jónssyni (f. 1807,
d. 1889). Þau hjón eignuð-
ust 21 barn á árunum
1839-1866 og áttu þó
aldrei tvíbura. Alls komust
11 þessara barna á fullorð-
insár."
SÍBS nær nú til allra
brjóstholssjúklinga
Nú er verið að endurskoða skipulag og starfsemi
SÍBS vegna fjölgunar þeirra sjúklingahópa sem að-
ild eiga að sambandinu. Nafni þess hefur nýlega
verið breytt í „Samband íslenskra berkla- og brjóst-
holssjúklinga". Auk berklasjúklinga nær sambandið
nú til astma- og ofnæmissjúklinga, hjartasjúklinga
og lungnaþembusjúklinga.
Hafin er útgáfa fréttabréfs samtakana undir
heitinu „SÍBS-fréttir". í forystugrein fyrsta blaðsins
er m.a. sagt að auka þurfi samkennd brjóstholssjúkl-
inga og benda á augljós sameiginleg hagsmunamál.
Víða austan hafs og vestan munu félög lungna- og
hjartasjúklinga hafa sameinað krafta sína í einu
sterku sambandi, að sögn blaðsins. -jr.
34 HEILBRIGÐISMÁL 2/1985