Alþýðumaðurinn - 23.04.1987, Síða 1
Við lok kosningabaráttu
/ síðustu alþingiskosningum skorti Alþýðuflokk-
inn í Norðurlandskjördæmi eystra rösk 40
atkvæði til að fá kjördæmakjörinn þingmann.
Flokkurinn fékk ekki uppbótarþingsæti þótt
atkvæðin væru rösklega 1500. Uppbótarþing-
maður kjördæmisins komst á þing í krafti 600
atkvæða. Eðlilega þótti mörgum þetta súrt í
broti og í þessu fólgið misrétti og ranglæti. En
lög eru lög og eftir þeim skal farið.
Nú hefur kosningalögunum verið breytt og
þau leiðrétt. Ef þau hefðu verið í gildi í kosning-
unum 1983, hefði flokkurinn fengið mann
kjörinn. Jafnaðarmenn á Norðurlandi eystra
hafa nú meðbyr, en þeir vita af reynslunni að allt
getur gerst í kosningum. Þeir hafa barist vel og
málefnalega, kynnt kjósendum tillögur sínar um
betra samfélag og um baráttuaðferðir gegn mis-
rétti. Eftir að kosningabaráttunni lýkur eru það
kjósendur, sem fara með valdið. Dómi þeirra
verða allir að hlýta.
Jafnaðarmenn eru ákveðnir í því að láta ekki
atburðina frá 1983 endurtaka sig. Ef marka má
skoðanakannanir eiga þeir möguleika á því, að
uppbótarþingmaður kjördæmisins verði úr
þeirra röðum. Ef sá möguleiki er innan seilingar,
getur hvert atkvæði skipt máli. Það er mikil þörf
á því, að fulltrúar jafnaðarstefnunnar hafi meiri
áhrif á stjórn þjóðmála en verið hefur. Misréttið,
sem hvarvetna blasir við, rennir stoðum undir
þessa staðhæfingu. Látum því ekki nokkur at-
kvæði ráða því hvort flokkurinn kemur sterkari
' eða veikari út úr þessum kosningum.
Eins og flestum mun kunnugt skipar Sigbjörn Gunnarsson
annað sætið á lista Alþýðuflokksins við komandi alþingis-
kosningar. Flestir telja að möguleikar Sigbjörns á að ná kjöri
séu nokkuð miklir. Við, sem undir þetta áskorunarskjal ritum,
þekkjum til ötulla starfa Sigbjörns að íþróttamálum á Akur-
eyri. Um árabil var Sigbjörn ýmist félagi okkar eða andstæð-
ingur á íþróttavellinum og ávallt hefur drenglyndið setið í
fyrirrúmi. Hin síðari ár hefur Sigbjörn setið í hinum ýmsu
stjórnum KA og samstarfið alltaf verið með mestu ágætum.
Sigbjörn tók við formennsku í íþróttaráði Akureyrar sl. vor og
hafa íþróttafélögin og íþróttafólkið í bænum mætt stöðugt
aukinni velvild íþróttaráðs og bæjaryfirvalda. Við viljum
undirstrika mikilvægi þess að menn hliðhollir íþrótta-
hreyfingunni sitji á Alþingi. Mörg og mikilvæg mál sem tengj-
ast íþróttahreyfingunni koma til úrlausnar á Alþingi og við
vitum að Sigbjörn Gunnarsson verður betri en enginn á þeim
vettvangi. Við hvetjum fólk til að tryggja ungum Akureyringi
sæti á Alþingi.
5? S-5/v— / rr t *
Frá
Sigtúnshópnum
Frjálshyggjan
Á undanförnum árum hefurfrjálshyggjan blómstrad á íslandi. Kauptöxtum
launafólks hefur verid haldid nidri. Lánskjaravisitala og vextir hafa fetigid ad æda
upp úr öllu valdi. Allt hefur verið sett á markað. Lika heimilin.
___________Baráttan_______________
Þúsundir húsnœðiskaupenda risu upp og andæfdu launa- og lánastefnunni med
fjöldafundum, ályktunum ogbladaskrifum.
Pólitísk mistök ~1
Forsætisrádherra landsins viðurkenndi ad í lánskjaramálum hefdu veriðgerd
stórpólitísk mistök. Rikisstjórnin hét úrbótum.
Lengt í snörunni
Úrbætur ríkisstjórnarinnar fólustfyrst og fremst í því að endurlána okkur hluta af
þvísem hún áður hafði tekið af okkur með óréttmætum hætti. Meirihluti
alþingismanna bœttisíðan gráu ofan á svart meðþviað samþykkja
láglaunakjarasamningana.
Enn eykst misgengið
Enn er vegið að húsnæðiskaupendum. ínýjum skattalögum eru réttindi
húsnæðiskaupenda tilfrádráttar skert verulega.
Við spurðum flokkana
Við spurðum flokkana hvortþeir vilji nú koma tilmóts við okkur med
endurgreiðslum.
Framsókn virti okkur ekki svars. Sjálfstæöisflokkurinn sagdi nei.
Stjórnarandstöðuflokkarnir sögðujá.
Við minnum á
Nú dynja á okkur auglýsingar með fagurgala. Við skulum vera yfirveguð. Við
skulum dæma menn af verkumþeirra. Þeir hæla sér afþvíad hafa náð niður
verðbólgu. Við skulum muna að það var gert á okkar kostnað. Sjálfir kostuðu þeir
engu til. Nú talaþeir um festu. Við skulum muna hverjirfengu að kenna á festu
þeirra.
Árangurinn
Barátta okkar hefurskilað árangri. Húsnæðismáleru nú mannréttindamál. Við
risum upp gegn frjálshyggjunni. Þvímiðurnáði hún að leggja mörg heimili i rúst.
En við gefumst aldrei upp.
KOMUM í VEG FYRIR AÐ HEIMILIN VERÐIAFTUR VETTVANGUR
DÝRKEYPTRA PÓLITÍSKRA MISTAKA.
Húsnæðishreyfingin.