Alþýðumaðurinn


Alþýðumaðurinn - 15.05.1990, Page 2

Alþýðumaðurinn - 15.05.1990, Page 2
LEIÐARI Nú í upphafi þess mikla áhuga sem hvarvctna kemur í Ijós á umhverfismálum í landi voru, er ekki úr vegi að geta þess sem þegar hefur, á yfirstandandi kjörtímabiii verið unnið í þeim málaflokki. Um leið er rétt að rifja upp litla svipmynd frá fyrri tíma svona rétt til samanburðar á starfsháttum núverandi meirihluta, og meirihlutans sem Framsóknarmenn stóðu fyrir. Það gerðist í lok næstliðins kjörtímabils að stórum hluta hagnaðar Vatnsveitunnar var með einni bæjarstjórnarsamþykkt kippt þaðan sem hann varð til, og fluttur til nota á öðrum sviðum. Þessi fram- gangsmáti þáverandi meirihluta var illa séður af krötum, og töldu þeir slík vinnubrögð síst til þess fallin að skapa traust og heilbrigt samstarf milli kjörinnar bæjarstjórnar og faglegra stjórnenda stofn- ana bæjarins. Eins og bæjarbúar muna sjálfsagt eftir þá sagði Freyr Ófeigsson af sér formennsku í stjórn Vatnsveitunnar í kjölfar þess- ara atburða og mótmælti þessum aðgerðum harðlega i bæjarstjórn. Það skal skýrt tekið fram að Alþýðuflokkurinn var síður en svo mótfallinn þeim framkvæmdum sem ráðist var í fyrir þetta fjármagn, enda hefur flokkurinn sýnt það og sannað með forystuhlutverki sínu á sviði málefna hinna öldruðu á þessu kjörtímabili, að þar hafa stað- ið réttir menn við stjórnvölinn og mótað nýja og manneskjulegri stefnu í þjónustumálum þeirra. Stefnu sem fyrst og fremst mótast af virðingu fyrir ákvörðunum þeirra sjálfra um þjónustuþörf sína. Nei, það var fálm og stefnuleysi Framsóknartímans sem verið var að mótmæla, og skyndilausnir þær sem ráðleysi þeirra leiddi af sér. Nú, eins og þá er það álit krata að það sé mikilvægt að stofnanir bæjarins hafi skýrt markaða og trausta tekjustofna sem séu við það miðaðir að með góðum rekstri og ráðdeild megi ná markmiðum stofnunarinnar samkvæmt áætlunum um verkefni og nauðsynlegan framkvæmdahraða. Það er ekki ætlast til að stofnanirnar skili svo og svo miklum hagn- aði til bæjarins til ráðstöfunar fyrir meirihlutann til óskilgreindrar útdeilingar, slíkt hvetur ekki til ráðdeildar, og bíður jafnvel þeirri hættu heim að ráðist verði í ónauðsynleg verkefni til þess eins að halda fjármagninu innan viðkomandi stofnunar. Bæjarbúar hafa eflaust tekið eftir því að þegar bæjargjöldin voru lögð á í ár, þá var gerð nokkur tilfærsla á tekjustofni frá vatnsveitui annarsvegar með lækkun vatnsskatts, og til svokallaðrar fráveitu, en þar er átt við holræsagerð. Þessi tilfærsla á tekjumöguleikum íþyngdi þó ekki bæjarbúum frekar en áður var, en var til þess gerð að renna traustari stoðum undir þær bráðnauðsynlegu framkvæmdir sem nauðsynlegt er að ráðast í til að koma frárennslismálum bæjar- ins í viðunandi horf, og nýta til þess þá möguleika sem felast í því að Vatnsveitan þarfnast ekki þessara tekna um sinn. Núverandi meirihluti hefur þannig haflð undirbúning að því að hægt verði að ráðast í þessar framkvæmdir innan skamms, og að þar verði byggt á fjárhagslega traustum grunni, bæði hvað varðar eigin fé fráveitunnar, lánstraust hennar og greiðslugetu lána. Þarna er farin óllkt eðlilegri leið en sá hrærigrautargangur skyndi- ákvarðana sem einkenndi svo oft síðasta stjórnartímabil Framsókn- aráranna. J.G. 2 - ALÞÝÐUMAÐURINN

x

Alþýðumaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðumaðurinn
https://timarit.is/publication/597

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.