Alþýðumaðurinn - 15.05.1990, Blaðsíða 3
Þorsteinn Þorsteinsson skrifar:
Ræktun skjólbelta á
norðurmörkum bæjarins
Eitt af mörgum málum sem
ALÞÝÐUFLOKKURINN hefur
á stefnuskrá sinni er ræktun
fjölbreyttari ræktunar fagurs
gróðurs á lóðum sínum sér
ánægiu og öðrum til augnayndi:
Gott mannlíf i fögru umhverfi.
Það er öllum unnendum fagurs
ntannlífs í fögru umhverfi, ljóst
hversu mikið skynsamlegra það
er að koma upp sameiginlegum
skjólbeltum í hæfilegri fjarlægð,
heldur en að hver og einn burðist
með mannhæðarháan skjólvegg á
sinni lóð og útiloki um leið sólina
frá því að næra það líf sem skjóls-
ins á að njóta. Einnig er það á
dagskrá Alþýðuflokksins að
hefja lagfæringar á jarðraski mal-
arnámsins á efri hluta Glerár-
svæðisins, og hefja þar útplöntun
til að hefta óþolandi jarðvegsfok
yfir bæinn auk þess að veita sam-
skonar skjól fyrir suðvestanátt-
inni sem oftlega hefir unnið tjón
á garðagróðri og öðrum eignum
bæjarbúa. Við efumst ekki um að
bæjarbúar munu taka virkan þátt
í þessum framkvæmdum ef
bæjarstjórn hefur frumkvæði að
Hermann R. Jónsson skrifar:
Málefni Glerárhverfis
og Síðuhverfis
skjólbelta norðan við bæinn.
Þegar talað er um norðurmörk
bæjarins í þessu sambandi, þá má
enginn skilja það svo að með
þessari skjólbeltahugmynd sé
aðeins verið að hugsa um merk-
ingu á bæjarlandinu.
Það mætti að sjálfsögðu gera
með öðrum ódýrari ráðum ef
þurfa þætti, enda verða mörk
bæjarlandsins vonandi breytan-
leg í framtíðinni. Það vill hins
vegar svo til að samkvæmt rann-
sóknum kunnáttumanna um áhrif
skjólbelta á veðurfar innan
bæjarins, að slík skjólbelti kæmu
að bestum notum fyrir byggðina í
norðurhluta Glerárhverfis og efri
hluta Brekkunnar, ef þau yrðu
ræktuð, frá fjalli til fjöru, þar
sem núverandi norðurmörk
bæjarins liggja. Ræktun slíkra
belta valins hágróðurs á sér langa
þróunarsögu víða um heim og
hefur ótvírætt sannað gildi sitt.
Þau draga svo úr vindstyrk að
áhrifanna gætir ótrúlega langt frá
staðsetningu þeirra, og þau draga
úr og stöðva skafrenninginn svo
að snjóalög breytast verulega í
skjóli þeirra.
Hver veit nema kostnaður við
ræktun beltanna gæti skilað sér
fljótt nteð lækkuðum snómokst-
urskostnaði, enda er það oftar
skafrenningurinn en ofankoman
sem á sök á útkalli snjóruðnings-
sveitar bæjarins. Þetta er ódýr-
asta, fallegasta og hagkvæmasta
leiðin til að bjóða veðraham
norðursins birginn, og skapa
bæjarbúum aukin tækifæri til
Atvinnumálin verða
númer eitt, tvö og þrjú hér á
Akureyri næstu mánuðina hvort
sem lausnin verður álver við
Eyjafjörð eða ekki. Það þarf að
stuðla að traustu, fjölbreyttu og
heilbrigðu atvinnulífi sem tryggi
hverri vinnufúsri hönd störf við
sitt hæfi, og sem bestri afkomu.
Ég er þeirrar skoðunar að það
sé einnig mikilvægt að aukinni
atvinnu fylgi einnig aukinn kaup-
máttur almennings svo að það
leiða orðspor hverfi, sem af
Akureyri hefur farið um langa
hríð, að hér sé eitthvert mesta
láglaunqsvæði landsins. Mér er
ofarlega í huga unga fólkið sem
er að reyna að eignast þak yfir
höfuðið eins og háttar til um svo
marga í hverfinu mínu, Síðu-
hverfi. Þetta fólk vinnur margt
hvert hörðum höndum langan
vinnudag, greiðir því háa skatta,
og þar sem hverfið er ungt eru
húsin með raunhæft fasteignamat
og þar með há fasteignagjöld.
Það vill hinsvegar dragast allt
of lengi að þjónustan sem bæjar-
félagiö á að láta í té fyrir þessi
gjöld íbúanna komist í sambæri-
legt horf við það sem íbúar eldri
hverfa njóta. Það þarf að ljúka
við frágang gatna og gangstétta.
Það þarf að koma á fót útibúum,
utan Glerár, frá ýmsum opinber-
um þjónustuaðilum svo sem
bókasafni, heilsugæslu, lyfja-
verslun og pósthúsi. Það þarf að
styðja myndarlega við bakið á
æskulýðs- og íþróttastarfsemi í
heimahverfi, og að ljúka við
byggingu íþróttahúss. Flestir
bæjarfulltrúanna hafa verið
ósköp hljóðir um það hvert þeir
ætla börnum væntanlegs Gilja-
hverfis að sækja skóla.
Mig grunar að í huga þeirra
hljóðu, sé Síðuskóli efst á blaði
sem ódýrasti kosturinn, en nú
þegar er sá skóli fullsetinn og
ekki fullbyggður enn. Ég vil
benda íbúum Síðuhverfis, og
þeim sem hyggjast byggja Gilja-
hveiuu, a pao að stefnuskrá
Alþýðuflokksins gerir ráð fyrir
því að Giljaskóli rísi af grunni og
að lokið verði við Síðuskóla.
Einnig gerir sama stefnuskrá ráð
fyrir því að hverfasamtök eins og
Síðusamtökin fái nokkurn rétt til
ákvörðunartöku unt framkvæmd-
ir og forgangsröðun verkefna
innan hverfisins, og að þeim
verði jafnvel gert kleift að sjá um
ýmis smærri verkefni svo sem
Þorsteinn Þorsteinsson sundlaugar-
vörður skipar 7. sæti á lista Alþýðu-
flokksins.
þeim og leggur sitt af mörkum til
að skapa tækifærin til þess.
SÉRTU SAMMÁLA,
VERTU SAMFERÐA. SETTU
X-VIÐ A HINN 26.MAÍ.
GERUM GÓÐAN BÆ BETRI.
Þorsteinn Þorsteinsson.
Hermann R. Jónsson sölumaður skip-
ar 8. sæti á lista Alþýðuflokksins.
varðandi skipulag óbyggðra
reita, fegrun þeirra og gróðurval.
Enn vil ég minna á Síðusam-
tökin, þau eru nú þegar sterk.
Það sannaðist eftirminnilega á
síðasta vetri þegar haldinn var
fundur í Síðuskóla, þar sem rædd
var stefna bæjarstjórnar í skóla-
málum. Á þeim fundi var knúin
fram breyting á skólastefnu
bæjarstjórnarinnar og nú geta
börnin okkar lokið grunnnámi
sínu heima í hverfinu. Við viljum
búa í góðu hverfi. Við eruni fjöl-
menn og höfum áhrif. Við viljum
auka áhrif okkar á innri málefni
hverfisins.
Þess vegna legg ég til að við
kjósum við Alþýðuflokkinn.
GERUM GÓÐAN BÆ BETRI.
SETJUM X-VIÐ A. 26. MAÍ.
H.R.J.
ALÞÝÐUMAÐURINN - 3