Brautin - 17.05.1929, Qupperneq 1
Ritstjórar:
Sigurbjörg Þorláksdóttir.
Sími 1385.
Marta Einarsdóttir.
Simi 571.
Brautin.
Útgefendur:
Nokkrar konur í Reykjavík.
Sími: 491.
Afgreiðslan er á Lokastfg 19.
Simi 1385.
1. árgangur.
Föstudaginn 17. maí 1929.
45. tölublað
Ný stefna, nýr kraftur.
Vitrar konur, sem fylgst hafa
með því, sem Brautin hefir flutt,
siðan hún hóf göngu sína, munu
hafa tekið eftir því, að hjá henni
kemur fram nýr andi, ný stefna
i stjórnmálum. Fyrst hikandi
og óákveðið eins og hún væri
að smáprófa sig fram, siðar
ljósar og ákveðnara. Stefnan er að
smáskýrast, verða greinilegri og
greinilegri. Með greininni
»Einkaheimilið og þjóðarheimil-
ið«, sem birtist í næst siðasta
blaði, má svo segja aðhúnfyrst
kveði upp úr um, að hún vilji
annað og hærra takmark, en
þær stjórnmálastefnur, sem nú
eru uppi með þjóðinni.
Nýja stefnan er einföld og ó-
brotin að því er grundvöll henn-
ar snertir.
Að öðru leyti á hún eftir að
þroskast og taka á sig í mörg-
um greinum nýja og fullkomn-
ari mynd.
Það sem aðrar stjórnmála-
stefnur byggjast aðallega á, eða
hafa bygt hingað til, er að gera
mönnunum sem auðveldast, að
sjá sjer farborða efnalega. Það
er hin efnalega afkoma manna,
sem hefir hingað tii verið meg-
inatriði allra ríkjandi stjórn-
málastefna. Stjórnmálamenn
hinna ýmsu landa hafa unnið
af krafti að efnalegum framför-
um þjóða sinna, likamlegri vel-
líðan, mentun þeirra og vísind-
um. Aðaláherslan lögð á það,
að gera þjóðirnar ríkar og vold-
ugar.
í*etta má segja að sje sam-
eiginlegt með öllum rikjandi
stjórnmálastefnum, hvort sem i-
haldsstefnan, frjálsiynda stefnan,
jafnaðarstefnan eða sameignar-
stefnan eiga í hlut.
Ef þetta takmark næst, er
þeirra barátta búin að full-
sigra. Þeir heimta ekki meira,
gera ekki krófu til annars eða
meira.
Stefna Brautarinnar er annars
eðlis. Það mætti segja að hún
sé andlegri eða gædd öðrum
anda. Henni þykir að visu mik-
ils um vert góð efnaleg afkoma
þjóðarinnar, en aðalatriðið fyr-
ir henni er það ekki. Aðalatrið-
ið fyrir hinni nýju stefnu, er að
auka siðgöfgi þjóðarinnar og
mannúð. Með öðrum orðum
reyna að gera íslendinga að betri
mönnum.
Það sem henniþykir mest um
vert af öllu og það sem henni
þykir hvað mest skorta á, er
að þrátt fyrir allar verklegar
framfarir, betri kjör að mörgu
leyti, höfum vér ekki þroskað
siðferði vort að sama skapi.
Opinbert siðferði vort er enn
á mjög iágu stigi að mörgu
leyti og vjer hyggjum að það
sé meðal annars ein helsta á-
stæðan til þess, hve margt gott
fólk heíir beinlinis imugust á
að skifta sér noklcuð af stjórn-
málum. Þeim íinst pólitíkin svo
lágt niðri, að hver maður hljóti
að saurga sig á að koma ná-
lægt henni. Þetta er sorglegt til
frásagnar, en þó er þetta satt.
Þetta getur ekki verið heilbrigt
ástand og þeim stefnum sem
slíkt ástand skapa og halda þvi
við öld eftir öld, hlýtur að vera
að einhverju leyti ábótavant.
Stefnur sem taka lygina i þjón-
ustu sína, leyfa svikunum að
vaða uppi, troða réttlæti undir
fótum og leyfa mannúðarleysinu
að leika lausum hala, geta ekki
verið réttar, þær vantar í sig
það, sem á að gefa hverri stefnu
sitt aöalgildi: kraftinn til að
bæta mennina.
Nýja stefnan, siðgöfgisstefnan,
ræðst hér gegn. Hún hatar lýg-
ina. Hún hatar svikin. Hún
hatar óréttlætið og manúðar-
leysið og vill ryðja þessu burt
með öllum þeim meðulum, sem
hún getur. Hún fyrirlýtur allan
pólitiskan leikaraskap og lodd-
arahátt, hjá hverjum sem hann
kemur fram. Hún fyrirlítur ó-
hreinskiini og fals, hvar sem það
brýst út. Hún heimtar að menn-
irnir séu virtir, ekki eftir stöðu
sinni eða fjárhag, ætterni eða
visku, heldur aðeins eftir sið-
ferðisþreki og mannúðarþrótti.
Hún vill hafa þá æðsta, sem
bestir eru, og hún vill að alt
annað, gáfur, vit, auðæfi og list-
ir þjóni þeim auðmjúklega í öllu.
Með því eina móti er hægt
að fá fólkið til að sækjast eftir
siðferðisþroska, að það sjái það
og íinni að hann sé og eigi að
vera mest metinn af öllu.
í margra augum er siðferðis-
stefna hlægileg og einkisvirði,
jafnvel bjánaleg. Og af hverju
er það? Það er af því að vér
höfum litið gert annað en pré-
dika moralinn af trúarbragða-
Fyrir konur:
Sumarkápur, Kjólar,
Golftreyjur, Undirföt,
Buxur, Sokkar,
Lífstykki, Slæður,
Svuntur margar tegundir.
Álnavara, Gluggatjaldaefni,
Fiður og dúnn o. fl. o. fl.
JF’yrir karla:
Alfatnaðir, Rykfrakkar,
Sumarskj'rtur, Manchett-
skyrtur og flibbar,
Bindi, Húfur,
Sokkar o. fl. o. fl.
Alt best og ódýrast
lijá oh.Rur.
Fatabúðin-útbú,
Skólavörðustíg 21.
íi*/*s*/.
Vf/S/r/S* */*/*//r/*/*/Æ. Æ/Æ/Æ. 'Æ/Æ/Æ. Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/Æ/ÆZÆ/Æ. Æ/Æ/S
ástæðum, en ekki breytt mor-
alskt af þvi það er viturlegt.
Vér höfum gert það heimsku-
verk, að blanda saman moral
og trúarbrögðum og jafnvel kom-
ist svo langt, að setja trúar-
brögðin yfír moralinn. Slikt er
bin mesta fáviska. Morallinn
á að vera alveg sérstæður og
er jafnnauðsynlegur hverju riki,
hvaða trúarbrögð sem ríkisþegn-
ar kunna að hafa, eða þó þeir
sjeu trúlausir með öllu.
Morallinn á að vera sameig-
inlegur fyrir alt mannkynið,
hversu mjög sem trúarbrögðin
kunna aö greinast.
Og mórallinn er það, sem á
að vera hyrningarsteinninn und-
ir framtíðar-stjórnmálastefnu
Brautarinnar. Takist Brautinni
að vekja þjóðina til umhugs-
unar um þá stjórnmálastefnu,
sem setur siðgöfgi og mannúð
í hinn æðsta sess i þvi opin-
bera lifí, er aðal takmarki henn-
ar náð.
Hún hefír óbilandi traust á
þvi að islenskar konur eigi eftir
að vinna sitt mesta og göfug-
asta verk i hinu opinbera lifí:
Af fá karlmennina til að skilja
það, að það er til æðra og
hærra takmark en miljónagróði,
verklegar framkvæmdir, Eddu-
skýringar og lagatilbúningur í
tonnatali og það takmark er að
gera mennina að betri mönnum.
Það er grundvallarstefna Braut-
arinnar í hinu opinbera lífi. Og
til þess að koma því fram vill
Mörg 100
grammóíónplötur
teknar upp þessa dagana.
Verðið ótrúlega lágt — frá
1. kr. platan.
Fleiru úr að velja en hér
tíðkast.
HljöÖfsera.verslu.n
Helga Hallgrímssonar,
Sími 311. Bankaatrœti. ölmí 31i.
(A,ðu.r versl. L. Gt. Lúðvígsgon).
hún fá góðu konurnar fram á
stjórnmálasviðið og lögtryggja
þeim völd til jafns við karlmenn
á löggjafarsamkomu þjóðarinn-
ar með réttlátri kjördæma-
skipun.
Saga íslensku þjóðarinnar sýn-
ir okkur það greinilega, að það
sem verst hefir farið með þjóð-
ina, það sem hnept hefír hana
i alda þrældóm var siðferðis-
spilIÍDg þjóðarinnar, einkum
stjórnmálamanna hennar og
annara ráðandi manna.
Þegar þeir hættu að virða lög
og rétt, þegar þeir fóru að þjóna
valdafikn sinni og taumlausri
eigingirni, þegar þeir hættn að
meta gott siðferði nokkurs, þá
hlaut að fara sem fór. Spilling-
in óx, hver höndin upp á móti
annari, lævísin og ódrengskap-
urinn varð meiri og meiri, grimd-
in og ofsóknareðlið ákafara og
loks sviku æðstu menn þjóðar-
innar frelsi hennar og seldu það
erlendum mönnum í hendur
fyrir völd og nafnbætur.
Svo hlýtur að fara fyrir hverju
ríki, sem glatar siðferði sinu.
Siðgöfgis- og mannúðarstefn-
an á að reyna að hindra það,
að sagan endurtaki sig.
Konurnar eiga að Ieggja fram
krafta sina til þess að það talcist.
Með konunum kemur nýr
kraftur og ný stefna inn í stjórn-
málalif vort.
Þær búa yfír miklum gáfum,
miklu siðferðisþreki, mikilli
fórnfýsi og óeigingirni.
Hver efast um það, að slíkir
eiginleikar geti orðið þjóð vorri
að miklu gagni þegar hún fer
að hafa vit á að hagnýta sér þá?
Og sem stendur þarfnast heim-
urinn einkis frekar, en að
hinir góðu kraftar dragi sig ekki
í hlé og láti hin illu öfl einráð
í stjórnmálum þjóðanna.