Samtíðin - 01.07.1942, Qupperneq 8
4
SAMTÍÐIN
Ætlar Hitler sér að yfirbuga Japana?
[Eftirfarandi grein er lausleg þýðing á útvarpsviðtali, sem nýlega
álti sér stað í Ameriku milli þeirra Iíichard J. Walsh, útgefanda tíma-
ritsins Asia, og CharlesNelson Spinks, fyrrv. útgefanda blaSsins Japan
News Week i Tokíó. ViStalinu var útvarpað um gervöll Bandaríkin.]
WALSH: — Mér þætli fróðlegt, ef
þér vilduð byrja á að skýra frá
því, livað fyrir yður vakir með því
að kalla grein, sem þér liafið nýlega
birt í tímaritinu Asia: Meginlands-
menn Japans?
SPINKS: — í þeirri grein sagði ég,
að ráðuneyti Hideki Tojo hershöfð-
ingja væri háð áhrifum manna, sem
ég nefndi meginlands-menn Japans.
Á seinni árum hefur skapazl i Japan
sérstök tegund áhrifamanna, sem
stefna að yfirráðum Japana á megin-
landi Asíu. Þessir meginlandsmenn
álíta, að Bandaríkin og Bretland séu
megin farartálmi Japana á leið þeirra
til aukinna yfirráða í Austurálfu.
WALSH: — Hvað getið þér frætt
okkur um vináttuböndin milli þess-
ara landvinningafrömuða í Japan og
Þjóðverja? Hve náin er sú samúð?
SPINKS: — Það voru þessir Jap-
anar, sem átlu manna mestan þátt i
því, að japanska þjóðin gerðist aðili í
öxulrikja-bandalaginu svo nefnda.
WALSH: — En Þjóðverjar hyggja
einnig á yfirráð í Asíu. Mig mundi
furða á því, ef ekki kæmi lil árekstra
milli þeirra og Japana í Asiu, enda
þótt landrými sé þar mikið. Aður en
núverandi lieimsstyrjöld skall á, voru
Þjóðverjar komnir fram úr Bretum
að því er snerti vörusölu í Kína, en
þar eru beztu markaðsskilyrði í
Asíu, Þjóðverjum samdi ágætlega við
Kínverja í þessu tilliti og miklu betur
en japönskum kaupsýslumönnum
bafði samið við þá nokkurn tima áð-
nr fyrr.
SPINKS: -—: Framtiðar-samkomu-
lag Þjóðverja og Japana í Asíu lilýtur
að fara eftir þvi, bvernig Kyrrahafs-
styrjöldinni lyktar. Ef við Banda-
ríkjamenn sigrum .Tapana í þeirri
viðureign, hefur okkur þar með tek-
izt að brjóta á bak aftur eilt öxulveldi
Asíu. Sigri öxulveldin aftur á móti,
álít ég, að til árekstra muni koma
milli Japana og Þjóðverja í Asíu, þvi
að livorir munu telja aðra þránd i
götu austur þar. Japanar hvggja á
mikil framtíðaryfirráð i Asiu, en
Þjóðverjar vilja vafalaust (iðlasl
drjúgan skerf af herfanginu. Enginn
efi er á því, að þeir vilja eignast aft-
ur Kvrrahafseyjar þær, er þeir misstu
í fvrri heimsstvrjöldinni, og enn
fremur mun þá dreyma um yfirráða-
svæði og ivilnanir i Kína, en slíkt
mundi verða beinlínis á kostnað Jaþ-
ana. Þá tel ég sennilegt, að Þjóðverj-
ar liefðu hug á að eignast mikinn
hluta af nýlendum Hollendinga i
Austur-Indium og Malaja.
WALSH: Yið birtum einnig ný-
lega grein i tímaritinu Asia, og
nefndist hún: Hitler ællar sér að
ganga milli bols og liöfuðs Japön-