Samtíðin - 01.07.1942, Blaðsíða 12

Samtíðin - 01.07.1942, Blaðsíða 12
8 SAMTIÐIN Árni Sigurðsson Rétt i þeim svifum, sem þetta hefti Samtíðarinnar fór í prentun, barst oss sú fregn frá Vest- urheimi, að kvikmyndaleik- arinn heims- frægi John Barrymore væri látinn. Hann Fíladelfíu 15. því rösklega sextugur að er hann lézt. Barrymore ungur að leika, svo sem J. Gaynor MERKIR SAMTIÐARMENN Síra Árni Sigurðsson fríkirkjuprestur fæddist að GerSiskoti í Árnessýslu 13. sept. 1893. Foreldar: Sigurður Þorsteinsson, bóndi þar, og kona hans, Ingibjörg Þorkelsdóttir frá Óseyrarnesi. Árni ólst upp hjá foreldruin sínum og fluttist með þeim til Reykja- vikur árið 1910. Hann lauk stúdentsprófi vorið 1910 og hóf haust- ið eftir guðfræðinám hér við háskólann. Lauk hann prófi í þeirri grein í ársbyrjun 1920. Síðan fór hann utan og dvaldist um eins árs skeið við frekara nám í Ivhöfn og Uppsölum. Naut hann á fyrrnefnda staðnum einkum tilsagnar próf. Vald. Ammundsens, en á þeim siðarnefnda kennslu próf. Thorsten Bohlins, en báðir þessir há- skólakennarar urðu seinna biskupar. — Árni Sigurðsson var kosinn prestur Fríkirkjusafn- aðarins i Rvik vorið 1922 og vigður til prests 27. júní það ár. Tók hann við prestsstarfi sínu 1. sept. 1922 og hefur gegnt því síðan við mikl- ar vinsældir, enda er hann allt í senn frá- bær gáfumaður, málsnjall og lærður vel, en einn- ig söngmaður góður. Er sira Árni og glæsimenni hið mesta og drengur góður. Hann kvæntisl ágúst 1922 Bryndisi Þórarinsdóttur, prests var febr. fæddur i 1882, og aldri, lærði títt Barrymore er um ættmenn lians, og bróð- ir hans Lionel varð einnig heimsfrægur leikari. — Jolin Barrymore var um skeið blaða- maður i New York og ritaði þá um leiklist. Hann hóf leik- starf árið 1903 og lék siðan bæði í London og vestan hafs. Fyrsta kvik- myndin, sem hann lék i, hét Ameriskur borg- ari. Hann má telja einn hinn mesta „karakter“- leikara, sem sézt hefur á kvikmyndum, enda mjög sannur listamaður í sinni grein. Hákon VII. Noregskonungur, sem svo margir hlýir hugir hafa stefnl til að undanförnu héð- an af íslandi, er fæddur 3. ágúst 1872. Hann er næstelzti sonur Friðriks Danakonungs VIII. og hét þá Karl prins. Hann var á unga aldri í sjóher Dana og hlaut þar ýmis tignarstig. Hann kvæntist 22. júlí 189(5 Maud konungsdóttur landi, dóttur Játvarðar VII., og er hún látin fyrir nokkrum ár- um. Einkabarn þeirra er ólafur ríkiserfingi. — Þegar Norð- menn skyldu kjósa sér þjóðhöfðingja eftir skilnaðinn við Svía árið 1905 varð Karl Danaprins fyrir valinu að undangengnu þjóðaratkvæði i Noregi. Tók hann sér þá konungsnafn sitt. Eftir hernám Noregs vorið 1940 tókst konungi að komast til Englands, og hefur hann þar nú aðsetur ásamt stjórn sinni. N. Kusnetzov flotaforingi, yfirmaður alls Rauða flotans rúss- neska, mun vera yngsti flotaforingi heimsins. Oss þykir rétl að birta hér mynd hans, enda þótt engar upplýsingar um æviatriði hans séu fáanlegar, sakir algers skorts á heimildum. á Valþjófsstað, Þórarinssonar. ágætri konu. — Sira Árni hef- ur gegnt ýmsum trúnaðarstörf- um, auk embættis síns, m. a. hef- ur hann að undanförnu verið prófdómari í guðfræði við Há- skóla íslands, átt sæti í Sátta- nefnd Rvíkur og skólanefnd Kvöldskóla K.F.U.M., og er þá fátt eitt talið. Janet Gaynor, heimsfræg amer- risk kvikmvndastjarna, er fædd í Fíladelfíu 6. okt. 1906. Hún er vel menntuð, en hefur þó aldrei gengið á leikskóla frem- ur en ýmsir aðrir kvik- myndaleikarar. Hún er vinsæl hér á landi. Hákon VII. af Stóra-Bret- Kusnetzov

x

Samtíðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.