Samtíðin - 01.07.1942, Page 17

Samtíðin - 01.07.1942, Page 17
SÁMTlÐIN 13 og cg get heldur ekki komið til þín, rétt eins og þú ættir von á mér.“ — Eftir langan tíma kom Tómas til sjálfs sín. Hann var máttvana og taugarnar allar i ólagi. Honum fannst dagsljósið allt of blátt og skært, rúm- in allt of hvít og hjúkrunarkonurn- ar allt of snarar í snúningunum. Allar hugsanir hans beindust að einum og sama ásetningnum, án þess að nokkur athugasemd, ótti eða jafnvel hatur kæmist ])ar að. Hann ætlaði að drepa Johnny Asker. Dísa hafði fyrirfarið sér, af ])ví að hún gat ekki annað. Það væri bezt, að liann léti þá einnig stjórnast af afli, sem væri fjarri allri skynsemi. Þessi tilhugsun, að tor- tíma andstæðingi sinum, vai'ð hon- um undir eins til hugarléttis. Hún veitti honum uppreisn, ska])aði hon- um nýtt takmark, sem mundi forða honum frá brjálsemi. Tómas IJall hafði ekki minnstu hugmynd um það, hvar hann ætti að leila að Johnny Asker. Hann vissi ])að eilt að, Asker hafði farið lil út- landa, eftir að Dísa hafði fvrirfarið sér. Tómas missti nú algerlega alla fótfestu í lífinu. Hann flæktist úr einu starfinu í annað, fátæktin læsti klónum í I)ann. Vinir lians þekktu hann ekki fyrir sama mann og áður, og hann álti sér ekki annað takmark en það, að koma fram hefnd á hend- ur andstæðingi sínum. Hann vissi, að dagur hefndarinnar hlaut að vera í aðsígi. Tómas Hall keypti sér marg- hleypu. Þetta blikandi morðtól varð hlægilegt í hendi hans, sem aldrei bafði verið svo mikið serri lyft til böggs. Andartak fann hann lil blygð- Unar yfir því, að hann skyldi eiga sér þetta hætlulega leikfang. Hann hafði aldrei verið gefinn fyrir ævintýri. En hið hjargfasta áform vísaði öllum öðrum hugsunum á bug. AÐ VAR víst fullkomið hneyksli--------Hann hefði átt að sitja lengur í veitingahúsinu og lilusta á samtal hinna kjólklæddu manna, sem röbbuðu um gamalt hneykslismál, til þess að skerpa mat- arlystina. Hvað gátu þeir vitað um Johnny Asker? Hve mörg ár voru annars liðin? Þá hafði liann verið fertugur; nú var hann orðiim finnn- tíu og tveggja. Tólf ár. Tólf leiðinleg ár fyrir Johnny Asker. Þannig leil Tómas Hall á. Hann hafði aðeins einu sinni séð Asker tilsýndar á götu. Hann var hávaxinn, en auðnuleysið var áberandi, þar sem hann bar við gráa götuna. Andlitið þekkti hann af myndum, sem Dísa hafði látið eftir sig. Munnurinn var skapfestulaus, augnalokin þung, andlitið var gáfu- legt, en sagði ekki til um aldur Askers. Fólk gengur hiklaust á vald örlög- unum.-----------Hvað gat það verið, sem laðaði Dísu að þessum manni? .... Enginn getur um það sagt, hvers vegna aðrir eru ástfangnir. Við botn- um ekkert í ástum arinarra, en skilj- um eingöngu okkar eigin ást, sem ekki Jiarfnast neinnar skýringar. Tómas Hall tók marghleypuna sína upp úr skúffunni, þar sem liann hafði geymt liana. Með mestu þrautseigju gekk hann hús úr húsi og spurði kurteislega eftir óvini sínum. Loks- ins sagði dyravarðarkona ein, að Johnny Asker ætti heima í bakliúsinU

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.