Samtíðin - 01.07.1942, Qupperneq 18

Samtíðin - 01.07.1942, Qupperneq 18
14 SAMTÍÐIN alla leið uppi á 3. hæð. Hún sagði, að liann væri úti á daginn, en kæmi alll- af heim klukkan 9 á kvöldin. Þegar Tómas Hall var á leiðinni út úr hús- inu, heyrði hann, að konan var að þylja upp lífsvenjur annarra leigj- enda í húsinu. Klukkan liálfníu um kvöldið stóð Tómas Hall við útidyrnar á þessu húsi. Götuljóskerið har daufa hirtu, svo að gömlu liúsin sýndust drauga- leg í glætunni frá því. Regndropar féllu ofan úr ósýnilegri himinhvelf- ingunni. Það hlikaði á þá í birtunni frá Ijóskerinu, en síðan sloknaði á þeim, um leið og og þeir skullu lirá- hlautir á gangstéttina. Undir Ijósker- inu vætlaði slokknandi Ijóslækur. — — — alllaf heim klukkan 9 á kvöldin. Allt í einu kom maður fyrir götuhornið. Hann gekk álútur og var með dálítinn höggul i fanginu. Þeg- ar hann gekk framhjá Ijóskerinu, féll skuggi á andlit honum. Andlits- fallið sást því ógerla, en Tómas Hall þekkti manninn engu að síður. Það var Johnny Asker. Hönd Tómasar, sem allan tímann liafði haldið um marglileypuna, tók nú að titra. Hann teygði úr fingrun- uni, en þreif vopnið síðan heljartaki. Johnny Asker nálgaðist. Hann gekk stuttum skrefum og hrasaði við og við. Hann leit upp, kom auga á Tómas Hall og flýtti sér skyndilega til hans. Góði herra, kaupið þér þessar af mér. Þér skuluð fá þær fyrir lítið. Ég lief ekkert selt í dag. Hann losaði bréfið ulan af þvi, sem hann var með. Það voru fáeinar bleikar, hálfvisnað- ar rósir. Nú fyrst sá Tómas Hall framan í hann. Andlit hans var eins og kulnað skar.Hakan skalf,i annarri atjgabrún- inni voru krampakenndir drættir, og gráar hártjásur slóðu niður undan hattinum. Hann hafði þá orðið að rekaldi í lífinu! Hvað átti þessi vesa- lingur skvlt við Johnny Asker, liinn áhyggjulausa ævintýramann, sem eyðilagði líf annarra? Tómas horfði á sjálfan sig eins og annarlega per- sónu. Sjálfur var hann gamall mað- ur, sem ekki álti sér neitt takmark, og engum þótti vænt um hann. Hann var hingað kominn til þess að hefna sín, þessi broslegi maður, kominn úr lieimi, sem ekki var lengur til. Ilann þreifaði í leiðslu með vinstri hendi í vasa sinuni, fann þar smá- peninga, vasahnif og seðil. Hann bögglaði seðilinn milli fingranna og' rétli ókunna manninum hann. Johnny Asker bar seðilinn upp að nærsýnum augunum og vissi ekki sitt rjúkandi ráð. Því næst rélti liann Tómasi blómin í skyndi, opnaði útidyr húss- ins með titrandi höndum, bersýnilega dauðhræddur um, að aðkomumaður- inn mundi iðrast þessarar furðulegu gjafmildi sinnar. Rn Tómas stóð grafkyrr og kreisti marglileypuna með annarri hendinni, en þrýsti hálfvisnuðum rósunum að brjósti sér með liinni. Bílasérfræðingurinn: Þetta var Fiat, það heyrði ég á hljóðinu > honum. Áhorfandi: — Þér hafið bó víst ekki hegrt hvaða númer var á hon- um?

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.