Samtíðin - 01.07.1942, Qupperneq 21

Samtíðin - 01.07.1942, Qupperneq 21
SAMTlÐIN 17 SIR LEONARD HILL: Fólk kvefast ekki í kuldabeltinu MARGIR rithöfundar halda því fram, að kuldi og raki í lofti orsaki gigl. í því sambandi er á það bent, að gigt geri oft vart við sig undir veðrabrigði. Sú staðreynd kem- ur þó mjög í Ijág við þessa skoðun, að Skrælingjar og Lappar, sem búa við mikinn kulda og þokur, finna yf- irleitt aldrei til giglar. Gigtarsjúk- dómar eru bins vegar á hverju strái meðal þess fólks i tempruðu beltun- um, sem eyðir ævi sinni að mestu leyti innan liúss í frekar loftlausum íbúðum rykugra borga, þar sem hús- in eru hituð með miðstöðvuni. Hin klökugu héruð kuldabeltisins, þar sem oft er mikil þoka, eru meðal hollustu landa veraldarinnar. Þar fúnar ekki rekaviður, sakir þess að gerlar þeir, sem fúa og myglu valda, fá ekki lifað á þessum slóðum. Kulda- heltiskönnuðir, sem sofa úli í vot- um snjónum, fá oft kuldabólgu í hendur og fætur, en þeir fá hvorki kvef né lungnahólgu. I Shackletonleiðangrinum, sem farinn var ó árunuin 1914—17, brotn- aði skip leiðangursmanna, og urðu þeir siðan að búa við niikið harðrétti um alllangt skeið. En enginn þessara 56 manna kenndi sér nokkurs meins, cí' frá er talinn skyrbjúgur, sem gerði Vart við sig, þegar ekki náðist í nýtt kjöt. Sama máli gegndi um leiðang- Ursmenn Scotts skömmu eftir síðustu aldamót. Þeir urðu að þola þriggja {U'a harða útivist, höfðu ofl lélegan aðbúnað og þoldu auk þess matar- skort, en þeir veiktust aldrei hættu- lega, ferigu hvorki kvef né gigt og ekki einu sinni kverkasldt. Skyrbjúg- ur var eini sjúkleikinn, sem á þá striddi, einkum þegar nýmeti þraut. Arið 1936 hafðist rússneskur vís- indamaður, dr. Nitikin að nafni, á- samt 104 félögunx sínum við á ísjök- um um meira en tveggja mánaða skeið. Svo var kuldinn mikill, að þeir félagar töldu oft mikla liættu á því, að þeir mundu frjósa i hel, en enginn þeirra kvefaðist, hvað þá meira. Skrælingjar, sem enginn kynni hafa af svonefndri siðmenningu, eru allra manna liraustastir. Þeir fá aldrei kvef, vita ekki hvað gigt er og kenna sér yfirleitt einskis meins nema skvr- bjúgs, ef þá skortir það fæði, sem. þeim er eðlilegt og holt. Þeir hafa sterkar og óskemmdar ténnur. Skrælingjar eru frekar klunnaleg- ir vexti. Glaðlyndir eru þeir, gestrisn- ir og lijálpsamir. Þeir eru mjög þrautseigir menn, enda aldir upp í baráttu við kulda og harðrétti. Þeir klæðast skjólgóðum loðskinnsfötum og gæta þess vandlega, að þeim verði ekki kalt að óþörfu. Fóthúnað sinn vanda þeir eftir föngum. Skrælingjar lifa mestmegnis á hráu kjöti af sel- um, rostungum, hvölum, hreindýrum og björnum, en einnig á fiski. Á sumrin éta þeir einnig egg, og þá nevta þeir berja og lítilsáttar af jurta- fæðu.

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.