Samtíðin - 01.07.1942, Blaðsíða 24
20
SAMTÍÐIN
anna að heldur. Náttmyrkrið var að
færast yfir. Skotfærabirgðir Koden-
chuks voru þrotnar. En skyndilega
sást til óvinaskriðdreka, sem kom
hrunandi á fleygiferð og stefndi á
víglínu okkar. Ekkerl virtist þess
niegnugt að stöðva hann né afstýra
þeim skemmdum, sem af lionuni
myndu stafa. Eftir örfáar mínútur
mundi hann verða kominn með ofur-
þunga sínum inn í víglínu okkar,
hrjótandi og eyðileggjandi allt, sem
fyrir yrði. Ef Kodenchuk hefði verið
liugdeigur og óttazt um líf sitt, mundi
hann hafa yfirgefið fallbyssu sína og
lagt á flótta. En í þess stað þreif hann
sprengju og leitaði ekki undan, held-
ur óð fram á móti skriðdrekanum.
Og slikt hið sama gerðu menn lians,
örvaðir til dáða af dæmi hins hrausta
stórskotaliða. Með hrópinu: Fyrir
föðurland vort, fleygði Kodenchuk
sér fyrir skriðdrekann. Allt nötraði af
Iiinni ógurlegu sprengingu, sem nú
kvað við. I eldhafinu hlossaði líf hetj-
unnar upp rétt sem snöggvasl og leið
]jví næst undir lok. En Kodenchuk dó
ekki einsamall. Óvinirnir létu einnig
líf silt. Hið mikla skriðdreka-ferlíki,
sem fyrir örstutti-i stund hafði virzt
ósigrandi, valt nú eins og skip í ósjó
og tættist síðan sundur fyrir ofur-
magni sprengingarinnar.
Hvað var Kodencliuk að hugsa?
Hvernig var hon'um innan hrjósts,
er liann ruddist með sprengjuna i
hendinni fram móti óvina-skriðdrek-
anum? Var hann ekki gripinn nein-
um söknuði, er hann átti skyndilega
að verða sviftur birtu sólarinnar og
angan blómanna fyrir fullt og allt?
Hvort mundi hann nú ekki ættingja
Fylgið tízkunni
1942
og klæðizt hlýjum og smekklegum
ULLARFÖTUM
Munið, að heztu og fallegustu ull-
arfötin fáið þið hjá
Prjónastofunni Hlín
LAUGAVEGI 10, REYKJAVÍK
Heildsala — Smásala
Við seljum
allar fáanlegar vörur á hezta verði.
Seljum matvæli til skipa og
ferðalaga. Höfum margra ára
reynslu í útbúnaði til ferðalaga.
Matvæli. — Hreinlætisvörur.
Sælgæti. — Tóbaksvörur.
Ávallt nægar hirgðir.
Hafnarstræti 16. — Sími: 2504.