Samtíðin - 01.07.1942, Page 27

Samtíðin - 01.07.1942, Page 27
SAMTIÐIN 23 snéru rússnesku flugvélarnar lieim á leið. En flugvél Tarasovs, sem nú var tekin mjög að loga, var ekki leng- ur í fylgd með þeim. Hún hélt árásum sínum áfram og varpaði nú síðustu sprengjum sínum á fótgöngulið óvin- anna. Þegar hún var orðin alelda, sást hún steypa sér ofan úr háalofti og koma niður á geysimikinn þýzkan skriðdreka. Það kvað við ógurleg sprenging. Eldsúla og reykjarmökk- ur stigu til lofts, og þarna lét í skjótri svipan lífið hæði áhöfn flugvélarinn- ar og nokkrir af óvinum hennar. Þannig rækja ýmsir þessara fifl- djörfu rússnesku hermanna sitt ægi- lega hlutverk af fullkominni sam- vizkusemi. Þeir gera skyldu sína og virða að vettugi hráðan hana. Stund- um liefur fyrirlitning þeirra á vfir- vofandi dauða hjargað lífi þeirra á furðulegasta hátt, svo sem nú skal skýrtfrá. Nokkrir rússneskir sjómenn vörðu eitt sinn hæð eina undir forustu Kisliakov herforingja.Þeir voru miklu liðfærri en andstæðingarnir, og auk þess voru skotfærabirgðir þeirra á þrotum. Eftir voru aðeins 2—3 vél- byssur og nokkrar handsprengjur. Kisliakov sendi þá alla liðsmenn sína eftir nýjum skotfærahirgðum, en varð einn eftir og kvaðst mundu verja hæðina eftir megni fyrir hundruðum óvinanna. Óvinirnir hugðust nú að vinna þetta vígi á auðveldan hátt. Þeir gevstust upp eftir hæðinni, en féllu í fyrstu unnvörpum fyrir vélhyssu- skothríð Kisliakovs og því næst fyrir handsprengjum hans. Þar kom, að hann átti aðeins eftir tvær hand- Gætið þess að hafa eigur yðar aldrei óvátryggðar. Leitið upplýsinga um verð hjá Nordisk Brandforsikring Vesturgötu 7. — Revkjavík Sími 3569. - Box 1013 BOTNVÖRPUR fyrir togara og vélbáta V ÖRPUGARN BINDIGARN HAMPIÐJAN Símar: 4390, 4536. Símnefni: Hampiðjan

x

Samtíðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.