Samtíðin - 01.03.1949, Blaðsíða 8
4
SAMTÍÐIN
ÚTLITSUPPDRÁTTLJR
ÁGÚSTS STEINGRÍMS-
SDNAR BYGGINGAFR.
AF VÆNTANL. HEIILSU
HÆLI NLFÍ
samið sig að mataræði því, sem Jónas
Kristjánsson og NLFÍ telur einsætt að við-
hafa.
En stærsta mál, sem NLFÍ hcfur tekið
að sér að hrinda í framkvæmd, er bygg-
ing heilsuhælis á eignarjörð félagsins,
Gröf í Hrunamannahreppi, sem það keypti
20. nóv. 1946. MikiII undirbúningur er
þegar hafinn að byggingu þessa hælis, og
vilji einhverjir votta þessu ágæta félagi
virðingu og þakkir fyrir 10 ára ómetan-
legt hugsjónastarf í þágu alþjóðar, ættu
þeir hinir sömu að stuðla beint eða óbeint
að því, að heilsuhælið í Gröf komist upp
sem allra fyrst. Stofnun þess mun tákna
merkan áfanga í starfsemi félagsins. „Sam-
tíðin“ árnar NLFÍ allra heilla á komandi
árum, um leið og hún þakkar félaginu
ómetanlegt 10 ára brautryðjendastarf.
Frægur sö'pgkennari áiti aö dæma
um hæfni tveggja söngmanna. Þeg-
ar þeir höfðu sungið fyrir lmnn,
snéri hann sér að öðrum þeirra og
mælti: „Þér eruð sá aumasti söng-
maður, sem ég hef nokkurn tima
hluslað á!“
„Bravó!“ hrópaði hinn söngmað-
urinn, „þái takið þér mig fram yfir
hann?”
„Síður en svo,“ anzaði söngkenn-
arinn með fyrirlitningu, „þér kom-
ið nú hara ekki upp neinu hljóði!“
Hefur nokkur handa mér
harðan stein, sem rífur?
Komdu inn og kauptu þér
karbórúndum skífur.
Vitil þér þetta ?
Svörin eru á bls. 29.
1. Hvað þýðir virgill í fornu máli?
2. Hvaða káltegund er liarðgerðust
og auðugust af C fjörefni?
3. Hver orti þetta?
Það liafði þrívegis heppnazt drótt
að hefta lekann á knör.
4. Hver var Smiður Andrésson?
5. Hver samdi söngleikinn Tann-
háuser?
Kvensjúklingurinn: „Segið mér,
læknir, kemur örið eftir botnlanga-
skurðinn iil með að sjáist??“
Læknirinn: „Góða ungfrú, það er
satt að segja allt undir sjálfri yður
komið.“
„Varstu á skautum með henni
Rönku ?“
„Já.“
„Datt hún?“
„Já, en ekki fyrr en við þriðja
kossinn.”
SIGURGEIR SIGURJÓNSSON
hæstaréttarmálaflutnihgsmaður.
Aðalstræti 8. — Sími 1043.
Skrifstofutími 10—12 og 1—6.