Samtíðin - 01.02.1962, Blaðsíða 7
1. blaft 29. árg
l\lr. 279
Fcbrúar 1962
SAMTÍÐIN
HEIIUILISBLAÐ TIL SKEMMTLIUAR OG FRÓDLEIKS
SAMTIÐIN kemur iit mánaðarlega nema í janúar og ágúst. Ritstjóri og útgefandi: Sigurður
Skúlason, Reykjavík, sími 1252(5, pósthólf 472. Afgreiðslusími 18985. Argjaldið 75 kr. (erlendis 85
kr..), greiðist fyrirfram. Áskriftir miðast við áramót. Áskriftum og áskriftargjöldum veitt mót-
taka í Bókaverzlun fsafoldar, Austurstræti 8. — Félagsprentsmiðjan lif.
Á nranntiynið von á há.skuttifjju setjunnreitri ?
I)R. HYDEN, prófessor í vefjafræði við há-
skólann í Gautaborg, er talinn einn lærðasti
sérfræðingur heimsins í öllu, er lýtur að heila-
frumum. Hann hefur nú fundið dularfullt eit-
urlyf, sem unnt er að nota til að lama dóm-
greind heilla þjóða og villa þannig um fyrir
þeim!
Áhrifum þessa eiturs cr þannig lýst: Hér er
um eins konar „heilaþvott“ að ræða. Heill
vopnaður her í styrjöld myndi t. d. alls ekki
gera sér ljóst, að nein hætta væri á ferðum,
er hann legði til orrustu við óvinaherdeild.
Verkanir þessa furðulega, bragðlausa eitur-
dufts eru svo gífurlegar, að ekki þarf að láta
nema örlítinn skammt af því í vatnsbót heillar
stórborgar til þess að lama dómgreind allra
íbúa hennar. Væri þetta t. d. gert í Stóra-Bret-
landi, myndi í næsta stríði auðgert að sigrast á
60 milljónum manna, sem myndu lúta sigur-
vegurunum dómgreindarlaust.
Dr. Hyden flutti nýlega erindi um þetta
voðalega eitur í áheyrn 2000 manna vestur í
Kaliforníu. Meðal áheyrendanna voru heim-
spekingar, sagnfræðingar, efnafræðingar og
eðlisfræðingar víðsvegar að. Þeir sátu sem
þrumu lostnir, meðan læknirinn flutti erindið,
er hann nefndi: Maðurinn og menning-
• n — sefjun hugans.
Eitur dr. Hydens nefnist TAP, sem er skamm-
stöfun á heitinu „T r i c y a n o-a m i n o-p r o-
P e n e“. Eitrið orkar þannig á heilafrumurn-
ar, að auðvelt verður að beita menn áhrifavaldi.
Dr. Hyden fann eitrið fyrir liðlega 20 árum.
Þá rakst hann á rúml. 40 ára gamalt handrit,
þar sem bent var á leið til að breyta heilastarfi
mannsins með efnafræðilegri aðferð. Læknirinn
og aðstoðarmenn hans í Svíþjóð og Aineríku
bjuggu síðan til í tilraunaskyni ýmis lyf með
hinu hvíta TAP-dufti. Hinar ægilegu afleiðing-
ar eru nú kunnar. Hins vegar skilur enginn,
hvernig eitrið getur valdið svo ofboðslegri sæf-
ingu hugans, sem raun er á. Örlítill skammtur
af því lamar innan klukkustundar allt siðferði-
legt inótstöðuafl hcilans og gerir menn að
villuráfandi sauðum. Ekki er vitað með vissu,
hve lengi áhrif eitursins endast.
Dr. Hyden hikar við að fullyrða, að nota
rnegi TAP til að sigrast á heilum þjóðurn og
kúga þær. Hins vegar segir hann, að eitrið geti
gert þær ,,hlýðnar“!
Menn segja: ímyndið ykkur, hve geigvænlega
mætti beita þessu eitri í lögregluríki, sem lýt-
ur einræði eins manns eða fámennrar kliku.
Ekki þyrfti annað en lauma eitrinu í drykkjar-
vatn þjóðarinnar. Síðan væri hægt að segja
henni, að s t r í ð væri friður og að illt
merkti g o 11. Auðvelt væri að siga heilum
herfylkjum í stríð með lítilfjörlegum áróðri.
Hægt væri að láta hcrmennina drýgja hvaða
glæpi, sem vera skyldi og búa við harðrétti,
sem engir siðaðir menn myndu láta bjóða sér
án þess að gera uppreisn.
Hér er um að ræða ægilegt citur, sem unnt
er að framleiða í stórum stíl og selja við lágu
verði. Verst er, að engum — ekki einu sinni
höfundum eitursins — virðist ljóst, hve marg-
víslegu böli það getur valdið. Áhrifum þess er
helzt líkt við ógnir kjarnorkunnar í höndum
misendismanna. Eitt er þó jákvætt í þessu
sambandi: Talið er, að unnt kunni að vera að
finna nýjar leiðir til rannsókna á geðveiki
með tilstyrk TAP-eitursins.
244770
ÍSLANDS