Samtíðin - 01.07.1962, Blaðsíða 20
16
samtíðin
Æfingarnar eiga sér framandi nöfn. Sú,
sem við birtum hér mynd af, nefnist
sarvangasana. Hana eina á helzt að iðlca
20 mínútur daglega, en sé hún iðkuð
sem liður í yoga-kerfinu, nægja 12 mín-
útur eða jafnvel skemmri tími. Æfingin
verkar yngjandi á líffæri konunnar, eyk-
ur lieilhrigði húðarinnar, varnar æða-
hnútum o. fl.
Af öðrum yoga-æfingum má nefna
sirshasana, halasana, supta-vajrasana,
bhu jangasana, ardha-matsyendrasana,
gomukhasana og savasana, og hefur liver
þeirra mikilvægan tilgang.
Yoga-kennari hefur látið svo um mælt,
að hann kenni nemendum sínum aðeins
eina stund á viku. Fer liann þá með þeim
yfir helztu æfingarnar, en aðalþjálfun-
ina öðlast menn heima hjá sér. Nemend-
ur, sem eitthvað eru fatlaðir, eru vitan-
lega þjálfaðir sérstaklega, og er árangur-
inn furðulegur, ef lögð er rækt við nám-
ið. En ekki mega menn halda, að yoga
sé venjuleg leikfimi, sem orsakar þreytu
hjá flestum.
Yoga-æfingar hafa góð áhrif á liúð-
kirtlana og reynast vörn við bólgum,
æðalmúlum og of slöppum vöðvum. Við
vöðvaþjálfunina dreifist fitan undir
húðinni og menn léttast, án þess að þeir
dragi af sér í mat og án þess að nokkuð
slakni á húðinni.
Yoga kvað yngja menn um allt að 20
árum, ef þeir læra æfingakerfið til fulls
og iðka það nægilega. Er auðsætt af
framangreindu, að hér er um mikils-
verða mannrækt að ræða.
„Af hverju erlu að gráta, væni minn?“
„Hann pabbi sló mig fgrir ráðninguna
á einu orði í krossgátunni.“
„Hvernig í ósköpunum stóð á því?“
„Ég setti PABBI, þar sem átti að vera
5 stafa orð í merkingunni: fullur um
helgar.“
EINU sinni missti kona manninn.
Ekki vöknaði henni um augu við það
tækifæri. Nágrannarnir komu liver af
öðrum lil að volta henni hluttekningu
sina. Einn ])eirra sagði: „Annan eins
öðling hef ég aldrei þekkt.“ Annar sagði:
„Annar eins hófsmaður hefur varla ver-
ið til.“ Og í þessum dúr héldu þeir áfram
hver af öðrum.
Ekkjan, sem þóttist nú hafa þekkt
hinn framliðna manna hezt, hlustaði á
allt ])etta með þögn og þolinmæði, en
var satt að segja alveg undrandi. Að
lokum gat hún ekki orða bundizt, lield-
ur sagði:
„Ég held nú hara, að ég verði að
skreppa upp á loft og vita, hvort það er
einhver annar en karlinn minn, sem
liggur þar á hörunum.“
STÚLKA nokkur kom of snemma í
leikhús. Henni fannst því tilvalið að
snyrta sig dálítið, áður en sýningiu
hyrjaði. Illa gekk henni að finna snyrti-
herhergið, en eftir allmikla leit koinst
hún inn í stórt herbergi í fornum stíl-
Þar sá hún engan mann nema gamlu
konu, sem sat á rúmi og talaði hástöfum
við sjálfa sig.
Stúlkan púðraði sig nú vandlega, lag-
færði á sér hárið o. s. frv. Því næst flýtti
hún sér sömu leik til baka, en þegar hún
kom til sætis síns, var leiksýningin byrj'
uð.
„Ilvernig hyrjaði leikurinn?“ spurði
hún samfylgdarmann sinn.
„Það ættir þú nú hezl að vita, sem
varst á leiksviðmu mestallan tnnann!
anzaði maðurinn.
UÖFIIM smekklegt úrval af úrum °S
nvr Uln skartgripum, — úraviðgerðir.
Úra- og skartgripaverzl. Sigurðar Jónassonar,
Laugavegi 10 B. — Sími 10-8-9-7.