Samtíðin - 01.05.1964, Qupperneq 16

Samtíðin - 01.05.1964, Qupperneq 16
12 SAMTÍÐIN Nú víkur sögunni að tveim heimsfræg- um tónlistarmönnum. Pablo Casals, tal- inn bezti sellóleikari, sem uppi hefur verið, er 61 ári eldri en 3ja kona hans, Martita Montonez. Casals er nú 87 ára. Þau hjónin ganga, synda og spila sam- an.' „Við eigurn sameiginleg áhugamál," segir frúin, „og þá skiptir aldurinn engu máli!“ Hinn heimskunni, enski liljómsveitar- stjóri Sir Thomas Beecham lézt 1961, 82ja ára gamall. Árið áður liafði hann kvænzt Chirley Hudson, sem var 27 ára! T. S. Eliot skáld er 38 árum eldri en kona hans (sem áður var einkaritari hans). Hann hefur lengi þótt þunglynd- ur, enda kvað bókmenntaþemban liafa reynt fullmikið á taugakerfið. En nú hef- ur konu lians tekizt að porra hann upp. Þau sjást m. a. stundum í dansliúsum Lundúnahorgar. Þannig hefur frúin leitt „Eyðimerkur“-skáldið inn í mannheima. Bertrand gamli Russell, heimspeking- urinn alkunni, er orðinn fjörgamall. Ilann kvæntisl fyrir rúmum áratug konu, sem að vísu var þá orðin rúmlega sext- ug, en er þó 28 árum yngri en karlinn. Hún kvað hafa mildað hann, og veilti víst ekki af. BANDARÍSKUR kunningi minn sagði eitt sinn við mig: „Ef þú sérð unga konu leiða gamlan eiginmann (þetta var á Broadway í New York), þá geturðu reitt þig á, að hann er oftast vellríkur, stöku sinnum auk þess mjög frægur, en venju- lega hara auðugur." Ætli þetta sé nú ekki nærtækasta skýr- ingin á mörgum aldursmunar-hjóna- höndunum. Sálfræðingarnir þurfa auð- vitað að eyða að þessu mörgum orðum, semja langar greinar, gott ef ekki bæk- ur um aðlöðun samkvæmt kenningum Freuds heitins, ef þær eru þá ekki orðn- ar úreltar. En sannleikurinn er oftast auðsær, ef mönnum er ekki villt sýn með lærðum umbúðum og þessu eilífa stagli um vandamál (orð, sem ætti að gera út- rækt úr málinu og taka upp viðfangsefni í staðinn). Nei, málið er víst oftast fremur einfalt. Ungar stúlkur, sem stundum hafa orðið fyrir vonhrigðum i lifinu, giftust göml- um mönnum yfirleitt til fjár og frægðar. Svo geta „tekizt ástir“ með þessu fóllci, eins og gömlu höfundarnir okkar kom- ust svo vel að orði um lijónabönd, er hvorki var stofnað til af ást né hrifningu. En nú skulum við gefa Pollack sál- fræðingi aftur orðið. Hann hefur l)orið þetta mikla „vandamál“ undir nokkrar ungar stúlkur. Ein þeirra, 22ja ára skrif- stofumær, sagði, að forstjórinn byði sér oft út að borða. (Þess er ekki getið, hvort hann hafi verið kvæntur, ekkill eða pip' arsveinn). Þau ræddu um allt milli him- ins og jarðar. Hann var fjarska stima- mjúkur. „Þegar ég fer út á kvöldin að dansa með jafnaldra mínum, er ég ekki frá því, að hann kyssi betur (svo), en samt dauðleiðist mér með honum!“ sagði stúlkan og játaði með þvi, að forstjór- inn gerði fleira cn gefa henni að borða og ræða við hana um allt milli himins og jarðar! 32ja ára kona, sem giftist 56 ára manni fyrir þrem árum, sagði við Pollack: ,X fyrra hjónabandi mínu var ég 8 ár giU stórum dreng. Hvílíkur léttir að lifa nú í sambúð við fullorðinn, þroskaðan mann.“ Margar stúlknanna sögðu, að rosknu mennirnir væru langtum rómantiskari (mjög sveigjanlegt orð) en þeir yngri- Hálfþrilug stúlka, sem vegna starfs síns liitti daglega að máli karlmenn svo að segja á öllum aldri, sagði: „Ef roskinn maður býður mér út að kvöldlagi, sendir hann mér fyrst hloin og lætur síðan laka frá lianda okkur

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.