Samtíðin - 01.05.1964, Qupperneq 18

Samtíðin - 01.05.1964, Qupperneq 18
14 SAMTÍÐIN Þ / llœpadrt eiiir glœpacLrenftir aídrei, [lecjar: [jóít vecjunum cj eta or nv eim ocj huer onnur oarcjadifr. C dúr. cdq cfteipni Bófi tók hús á okkur hjónunum ÞAÐ VOTTAÐI fyrir ótla í augnkrók- um hans, ólla, sem gat i einu vetfangi breytzt í ógnun og orðið býsna geigvæn- legur, ef honum yrði sýndur minnsti mótþrói. Þelta var stráklingur innan við tvítugt, toginleitur og sultarlegur til munnsins. Fötin virtust of víð honum, eins og hann liefði liorazt innan í þeim upp á síðkastið. Hann snaraðist að veit- ingaborðinu, lagði vinstri lúkuna kreppta á borðbrúniná, en miðaði marghleypu á mig með þeirri hægri. „Bara rólegur, herra minn,“ sagði hann ofur liægt og skotraði augunum um mannlausan veitingasalinn. Svo hnykkti hann höfðinu í áttina til eldhússins á bak við. „Nokkur þarna inni?“ spurði hann liörkulega. „Ekki aðrir en konan min,“ anzaði ég. Mér varð starsýnt á morðvopnið í hendi hans. Hann miðaði þvi á brjóstið á mér. „Heyrðu, drengur minn ...?“ „Kallaðu á liana undir eins!“ greip liann fram í fyrir mér. Ég kallaði á önnu. Ég heyrði skralla i matarílátum hjá hcnni. Svo kom hún innan úr eldhúsinu og þerraði votar hendurnar á svuntunni sinni. Þegar hún sá byssuna, náfölnaði hún. „Samúel,“ sagði hún lágt. Pilturinn greip óðara fram í fyrir henni: „Vertu nú rösk, þó verður ykkur ekkert gert. En ef þið reynið að beita mig brögðum, skuluð þið sjá, að ég er enginn viðvaningur að fara með þessa hérna!“ Og hann hóf byssuna á loft í ógnunarskyni. „Ef þú ert að sækjast eftir peningum, er ég hræddur um, að þú hafir litið upp úr krafsinu hér,“ sagði ég og skotr- aði augunum til konu minnar í aðvör- unarskyni. „Það kann vel að vera,“ svaraði hann, og varir hans titruðu dálítið, „enda ligg- ur mér nú á öðru meir. Ég er nefnilega alveg að drepast úr hungri. Þú gefur mér að éta, — en fljót nú!“ sagði hann við Önnu og skók vopnið að henni. Hún leit á mig, og ég kinkaði kolli. Ég vissi ósköp vcl, hvað liún var að hugsa. Hún hafði alla tíð verið mótfallin því, að við reistum þennan ventingaskála þarna við þjóðveginn vestur til Kletta- fjallanna — á eyðilegri lieiði langt frá mannabvggðum. Ég liafði einblínt á það sjónarmið, að hér vrði mikil umferð og þar af leiðandi áhatasöm veitingasala, en þar hafði mér nú heldur betur skjátl- azt. Enn sem komið var höfðum við ekki nema tvo örugga viðskiptavini: lögreglu- þjónana, sem önnuðust eftirlit á þess- um þjóðvegi. Langferðafólk fór yfirleitt hjá garði. Viðskiptin höfðu því verið býsna dræm, og nú leizt mér ekki á þau, þegar ég horfði á skammbyssukjaftinn, sem blasti þarna við mér! Ilm af steiktu kjöti lagði innan úr eld- húsinu. I óhugnanlegri kyrrðinni heyrði ég glöggt kraumið frá pönnunni á elda- vélinni. Gesturinn var þögull. Hann hafði sterkar gætur á mér, en gægðist við og við út um gluggann til að liuga að manna- ferðum úti á þjóðveginum. Eftir stutta stund skaut Anna matnuni

x

Samtíðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.