Samtíðin - 01.05.1964, Page 20
16
SAMTÍÐIN
„Viö vorum kallaðir út lil að hafa upp
á strák, sem hafði brotizt inn í benzín-
afgreiðslu ekki ýkja langt liéðan. Við
héldum, að hann kynni að hafa leitað
vestur á bóginn. Þetta er hættulegur
peyi, skal ég segja þér. Hann liirti alla
þá peninga, sem hann fann í afgreiðsl-
unni, og þegar afgreiðslumaðurinn ætl-
aði að reyna að liafa hendur í hári hans,
skaut hann óðara á hann. Maðurinn er
kominn á spítala, og honum er varla hug-
að líf. — Segðu mér, Samúel, áttu enga
byssu?“
Ég hristi höfuðið.
„Það er óvarlegt af þér. Þú ættir að
fá þér hana sem fyrst. Þetta er and-
styggilega afskekktur staður skal ég
segja þér. Það er aldrei að vita, hverja
hér kann að bera að garði.“
Kaffið var nú komið á horðið, og lög-
regluþjónarnir svolgruðu það í sig með
beztu lyst og höfðu liraðann á.
Páll lagði þriggja dollara seðil á borð-
ið. Ég greip hann og stakk honum í pen-
ingaskúffuna. Lögregluþjónninn Ieit á
mig stórum augum.
„Ég gef þér til baka, næst þegar ég sé
þig, ef Guð lofar okkur að liittast aftur
í þessu lífi,“ sagði ég í hálfum hljóðum,
grágulur í framan af skelfingu.
„Allt í lagi, bless á meðan,“ anzaði
hann og leit á mig dularfullum rann-
sóknaraugum.
Og mennirnir skunduðu út úr skálan-
um. Bíllinn ók hurt. I sama bili kom
pilturinn fram úr fylgsni sínu, leit út um
gluggann og sá, að bíilinn var að hverfa.
„Þetta tókst vel hjá þér,“ sagði hann
og glotti. „En svo var það nestið. Ég bið
liér, meðan þið takið ])að til,“ hætti hann
við og hallaði sér ánægjulega upp að
skálahurðinni.
1 sama vetfangi var hurðinni hrundið
svo harkalega upp, að pilturinn enda-
senlisl alla leið upp að veitingaborðinu,
en hyssan hrökk úr hendi lians út á mitt
gólf. I fátinu greip ég konu mína og
lagði hana endilanga á gólfið hak við
borðið.
Það var Páll yfirlögregluþjónn, sem
liafði gert þessa óvæntu innrás, og nú
var það liann, sem miðaði hyssu á af-
brotamanninn.
„Þú hefur skilið, hvað ég átti við, þeg-
ar ég tók þrjá dali fyrir þessa tvo kaffi-
bolla,“ sagði ég alls hugar feginn.
Páll kinkaði kolli. „Mér þóttu þeir
grunsamlega dýrir, og þegar þú sagð-
ist ætla að gefa mér til balca, ef Guð
lofaði okkur að hittast aftur hérna meg-
in grafar, þótti mér vissara að senda
hann Jón einan spölkorn burt í bílnum,
en koma sjálfur aftur til að athuga, hvað
hér væri eiginlega að gerast. Þú varst
líka óhugnanlega gugginn áðan, lags-
maður“.
„Hérna eru dalirnir ykkar. Húsið gef-
ur þessa kaffibolla!“ sagði ég brosandi,
þegar lögregluþjónarnir fóru með band-
ingjann út i hílinn.
Nokkru seinna fluttumst við hjónin
til mannabyggða.
Stína litla (við ókunnuga konu) ■'
„Hvað ertu gömul?“
Mamma hennar: „Uss, svona áttu
aldrei að spyrja kvenfólk, krakki!“
Stína: „Hvað hefurðu Iifað mörg ár?“
„Og ég sem var farin að halda, að
þetta grði alveg þrautleiðinlegt partí,
þegar blessuð örgggin sprungu!“
Höfum í miklu úrvali:
Jakkaföf — Drengjafrakka — Fermingarföt.
Dömu- og Telpnabuxur.
Drengjafatastofan
Ingólfsstræti 6. — Sími 16238.