Samtíðin - 01.05.1964, Síða 35
SAMTÍÐIN
31
Þeir VITRU SÖgðll Nýjar bækur {
DAVIÐ STEFÁNSSON: „Svitadropar
þeina manna,sem unnu að ryrstu jarðabót-
unum, eru löngu gleymdir. En grasið vex.
Túnin stækka. Áður voru þau aðeins
Þúfnakragar umhverfis bæina, nú eru þau
véltæk víðiendi. Orf og Ijáir eru ekki lengur
til Nú er slegið með vélum, þurrkað með
vélum. Mjaltað með vélum. Hestar sjást
naumast í haganum. Kolur er gleymdur,
Dleikur er gleymdur. En í hverju hlaði er
íeppi og dráttarvél. Allur húsbúnaður er að
verða með sama sniði og í kaupstöðum. Á
heimilum, þar sem áður voru þrír vinnu-
menn og vinnukonur, eru hjónin ein með
böin sín. Þau verða að erja frá morgni
t'1 kvölds, alla daga ársins, minnst fjór-
tán stundir í sólarhring. Þó að húsbænd-
Ur eigi sér andleg hugðarefni, gefst þeim
ekki tóm til að sinna þeim. Þetta er eitt
mesta mein þjóðarinnar. Góðar gáfur
Sluávisna og verða að engu. Brauðstrit
°S' efnishyggja verða allsráðandi. Aldrei
Var meira ritað og rætt um samvinnu.
Aldrei voru fleiri einyrkjar á Islandi. —
Þannig hefst öld vélanna, öld samvinn-
Uunar. En allt stendur til bóta.“
SPÁNVERJAR segja: „Á lygnu vatni
hjálpav Drottinn mér. Þegar öldurnar
rísa, mun ég hjálpa mér sjálfur.“
°SCAR WILDE: „Móðir er harðánægð,
Uleðan hún sýnist tíu árum yngri en dótt-
ir hennar.
X: „Eyddu ekki tímanum í eilífar afsak-
anir. Það er óþarft, ef vinir þínir eiga í
hlnt, 0g óvinir þínir taka ekkert mark á
þeim.“
X'- „Sá, sem hefur vit á að þegja, ber
°ft mesta virðingu fyrir móðurmáli sínu.“
LEO TOLSTOY: „Það er auðveldara
skrifa 10 binda heimspekirit en að lifa
samkvæmt einni lífsreglu.“
Robert J. Donovan: John F. Kennedy skipstjóri
á PT-109. 182 bls., íb. kr. 247.20.
Magnús Magnússon: Ég minnist þeirra. Með
myndum. 175 bls., íb. kr. 240.00.
Sigurður Breiðfjörð: Númarimur. 4. útg. Svein-
björn Beinteinsson sá um útgáfuna. Myndir
eftir Jóhann Briem. 208 bls., íb. kr. 220.00.
Guðniundur Böðvarsson: Landsvísur. LjóS.
Myndir eftir HörS Ágústsson. 57 bls., íb. kr.
200.00.
Gunnar M. Magnúss: Undir GarSskagavita. Hér-
aðssaga Garðs og Leiru. Með myndum. Fyrri
hluti. Liðnar aldir líða bjá. Síðari hluti. Með-
al samtiðarmanna. 360 bls., íb. kr. 340.00.
Jón Haraldsson: Gull i gainalli slóð. Æviminn-
ingar. Með myndum. 266 bls., ib. kr. 250.00.
Ásgeir Jónsson: Þræll liússins. Skáldsaga. 246
bls., íb. kr. 230.00.
Ingibjörg Ólafsson: Þorkell á Bakka. Frásög-
ur, sem flestar styðjast við raunverulega at-
burði. Gunnar Árnason, Benedikt Arnkels-
son, Bjarni Evjólfsson og Gunnar Sigurjóns-
son þýddu. 108 bls., íb. kr. 60.00.
Guðmundur Ingi Kristjánsson: Sólborgir. Aust-
urfararvísur 1963. 48 bls., ób. kr. 85.00.
Gísli J. Ástþórsson: Einfaldir og tvöfaldir. Smá-
sögur. Teikningar eftir höf. 143 bls., íb. kr.
150.00.
Erich Valentin: Beetlioven. Ævisaga í máli og
myndum. Jón Þórarinsson þýddi. 147 bls., íb.
kr. 445.00.
Víglundur Möller: Lax á færi. Safn af veiði-
sögum, mest um laxveiði. Teikningar eftir
Baltasar. 190 bls., ib. kr. 280.00
Aflamenn. Bók um þjóðfræga sjósóknara og
aflamenn. Með myndum. Höfundar: Ási i Bæ,
Indriði G. Þorsteinsson, Stefán Jónsson, Björn
Bjarman og Jökull Jakobsson. Jónas Árna-
son sá um útgáfuna. 189 bls., ib. kr. 320.00.
Benedikt Gíslason: íslenda. Bók um fornís-
lenzk fræði. 205 bls., íb. kr. 295.00.
Útvegum allar fáanlegar bækur. Kaupið bæk-
urnar og ritföngin þar, sem úrvalið er mest.
Sendum gegn póstkröfu um land allt.
Bókaverzlun Isafoldar
Austurstræti 8. Reykjavík. Sími 1-45-27.