Fréttablaðið - 29.03.2010, Blaðsíða 4
4 29. mars 2010 MÁNUDAGUR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hendrik Sigurðsson hendrik@frettabladid.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Henný Árnadóttir henny@365.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Bjarni Þór Sigurðsson bthor@365.is, Benedikt Freyr Jónsson benediktj@365.is
RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is
ELDSVOÐI „Ég er bara í áfalli og enn að átta mig
á þessu,“ segir Júlíus Már Baldursson, stærsti
landnámshænuræktandi landsins, á bænum
Tjörn í Vatnsnesi. Þar brunnu útihús, áföst
íbúðarhúsi Júlíusar, til kaldra kola aðfaranótt
sunnudagsins. Í húsunum voru 250 landnáms-
hænur, fjórir heimiliskettir og um þúsund egg
með lifandi ungum, sem áttu að klekjast út á
næstu fjórum dögum. Talið er að kviknað hafi
í út frá rafmagni.
Júlíus varð eldsins var um fjögur leytið í
fyrrinótt. „Ég fór á Akureyri á laugardags-
kvöldið. Ég kom heim um tvöleytið. Ég setti
kisurnar inn í hús, gaf þeim að éta og klapp-
aði þeim, lokaði svo á eftir mér og fór svo inn í
háttinn. Ég vaknaði svo aftur um fjögurleytið
og þá logaði allt stafnanna á milli.“
Peningalegt tjón Júlíusar hleypur á milljón-
um en fjöldi búra, útungunarvéla, safn drykkj-
ar- og fóðuríláta og talsvert magn hand- og raf-
magnsverkfæra brann. Stærsta tjón hans er þó
tilfinningalegt. „Mesta tjónið er hænurnar og
kisurnar mínar. Þarna var hún gamla Ráðhild-
ur mín, sex ára blanda af skógarketti og persa.
Högninn var fjögurra ára og svo voru það kett-
lingarnir þeirra tveir.“
Í hænsnahópnum voru einar fimmtán hænur
um og yfir tíu ára og fjöldi margverðlaunaðra
fugla, bæði hanar og hænur. Júlíus segir ekki
síður tilfinningalegan missi að þeim en kött-
unum. „Margar hænanna voru vanar að koma
til mín, setjast á höndina á mér, gogga í eyrna-
sneplana á mér og tala við mig, ef svo má segja.
Sumir halda að maður sé klikkaður að segja að
maður tengist dýrunum tilfinningaböndum, en
það er satt.“
Um þrjú til fjögur þúsund landnámshænur
eru til á Íslandi. Það er Júlíusi og öðrum í Eig-
enda- og ræktendafélagi íslenskra landnáms-
hænsna að þakka að blóðtakan er ekki meiri
en raun ber vitni fyrir stofninn, en hópurinn
hefur markvisst ræktað og dreift honum um
landið. Stofninn er því ekki í eins bráðri útrým-
ingarhættu og hann var fyrir 30 árum, þegar
Júlíus hóf sína ræktun.
Margir hafa boðið Júlíusi aðstoð sína. „Ég
hef fengið ótal símhringingar í dag frá fólki
hvaðanæva að af landinu, sem hvetur mig
áfram og margir hafa boðið mér nýjar hænur
úr sínum stofni. Öll þessi hvatning herðir mann
og hvetur mann áfram, mér þykir mjög vænt
um hana.“
holmfridur@frettabladid.is
GENGIÐ 26.03.2010
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
228,6246
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
128,98 129,60
191,75 192,69
172,46 173,42
23,169 23,305
21,289 21,415
17,764 17,868
1,3944 1,4026
195,12 196,28
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Sjáðu fleiri vörur á kuldakasti á www.rafha.is
KULDA
KAST!
VERÐ FYRIR
NEÐAN FRO
STMARK!
Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavík
Sími 5880500
www.rafha.is
183 lítrar
Orkuflokkur A
5 skúffur + 1 frystihólf með loki
HxBxD 144x54x58 cm
Verð áður kr 84.900
Verð nú 20.000
64.900
ÞÚ SPARAR
144
CM
Fyrstir koma frystir fá!
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
22°
12°
10°
7°
13°
15°
7°
7°
21°
10°
19°
17°
23°
2°
16°
17°
5°Á MORGUN
Víða strekkingur með
ströndum annars hægari.
MIÐVIKUDAGUR
Strekkingur með SA-
strönd annars hægari.
-2
-3
-5
-4
-4
-3
-2
-8
0
0
0
10
9
9
8
8
8
9
15
9
15
10
20
17
-2 -1
-4
-4-3-4 -4
-3
-2 -1
FROST Á FRÓNI
Það verður kalt
á landinu næstu
daga enda norð-
lægar áttir ríkjandi.
Um norðan- og
austanvert landið
má búast við snjó-
komu eða éljum
en björtu eða
nokkuð björtu
veðri sunnan og
vestan til.
Ingibjörg
Karlsdóttir
veður-
fréttamaður
RÚSSLAND, AP Rússar hafa fækkað
tímabeltum landsins úr 11 niður
í níu. Dmitrí Medvedev forseti
gaf út tilskipun um þetta og tóku
breytingarnar gildi í gærmorgun,
þegar flestir Rússar flýttu klukk-
unni yfir í sumartíma.
Þetta þýðir að Chukotka, aust-
asta hérað landsins, er nú níu
tímum á eftir Kalíníngrad-svæð-
inu við Eystrasalt. Einnig var
ákveðið að Samara og Udmurtia,
tvö héruð miðsvæðis í Rúss-
landi, verði á sama tímabelti og
Moskva.
Íbúar héraðanna eru mis-
ánægðir með breytinguna. Eink-
um eru íbúar í Samara ósáttir við
að sólsetur að vetrarlagi verði
skömmu eftir hádegi. - gb
Medvedev gerir breytingar:
Rússar fækka
tímabeltum
DMITRÍ MEDVEDEV Forsætisráðherra
Rússlands drepur tímann.
NORDICPHOTOS/AFP
Sprengja sprakk í Aþenu
Einn maður lét lífið og annar særðist
þegar sprengja sprakk í Patissíuhverfi
í Aþenu. Talið var að hinn látni hafi
verið með sprengjuna á sér þegar
hún sprakk.
GRIKKLAND
FJÖLMIÐLAR Hreinn Loftsson og fyr-
irtæki hans, Birtíngur hf., hafa selt
rekstur dagblaðsins DV og frétta-
vefsins dv.is til nýrra eigenda. Nýtt
hlutafélag, DV ehf., sem gekk að
kaupunum, er að stærstum hluta í
eigu Lilju Skaftadótttur listaverka-
sala og Reynis Traustasonar, rit-
stjóra DV. Starfsmönnum verður
gert kleift að eignast hlut í blaðinu
en í fréttatilkynningu frá nýjum
eigendum kemur fram að hópur-
inn sem stendur að kaupunum verði
kynntur nánar í DV eftir páska.
Í tilkynningu frá hópnum er jafn-
framt sagt að lögð verði áhersla „á
að takmarka áhrif eigendavalds
á DV, en í samþykktum hins nýja
félags er kveðið á um að enginn
einn hluthafi geti farið með meira
en 26 prósent atkvæða, óháð hluta-
fjáreign.“
Rekstur blaðsins verður óbreytt-
ur og munu útgáfudagar verða
jafnmargir og áður sem og rit-
stjórn blaðsins. Lilja Skaftadóttir
hefur starfað sem listaverkasali í
Frakklandi og er lítt þekkt nafn í
viðskiptalífinu hérlendis. Hún var
framleiðandi heimildarmyndarinn-
ar „Maybe I should have“ og skipaði
2. sæti á lista Borgarahreyfingar-
innar í NV-kjördæmi fyrir síðustu
alþingiskosningar. Auk þess að eiga
í DV er hún meðal hluthafa í vefrit-
inu Smugan. - jma
Listaverkasali og núverandi ritstjóri stærstu nýju hluthafarnir:
Eigendaskipti á DV og dv.is
LILJA
SKAFTADÓTTIR
REYNIR
TRAUSTASON
BRUSSEL, AP Evrópusamband-
ið uppfærir í vikunni umdeildan
lista yfir erlend flugfélög sem
ekki fá að fljúga til Evrópu. List-
inn hefur að geyma nöfn meira
en 200 flugfélaga sem sambandið
telur ekki uppfylla alþjóðlega
öryggisstaðla. Gagnrýnendur hafa
bent á að mörg félaganna séu ekki
lengur starfandi.
Listinn var endurskoðaður á síð-
asta ári til að leyfa einstaka flug-
vélum sem taldar voru öruggar,
en voru frá flugfélögum á bann-
lista, að fljúga til Evrópu. - gág
Uppfylla ekki öryggiskröfur:
200 flugfélög á
bannlista ESB
Hæsnabóndi segir tjón í
bruna helst tilfinningalegt
Júlíus Már Baldursson á Tjörn á Vatnsnesi horfði á ævistarf sitt fuðra upp í eldi aðfaranótt sunnudagsins,
þegar útihús hans brunnu með 250 landnámshænsnum, fjórum köttum og 200 eggjum við það að klekjast út.
JÚLÍUS MÁR BALDURSSON LANDNÁMSHÆNU-
RÆKTANDI Ævistarf Júlíusar fuðraði upp í eldsvoða
aðfaranótt sunnudagsins, þegar 250 landnámshænur
brunnu inni. Hann hefur síðustu 30 ár helgað sig
ræktun á landnámshænunum. MYND/ ÚR EINKASAFNI