Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn - 25.10.1934, Blaðsíða 2

Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn - 25.10.1934, Blaðsíða 2
2 AFMÆLISBLAÐ VERKAKVENNAFJELAGSINS FRAMSÓKN 1914—1934 samþyktar. En sá fundur var hald- inn 13. des. og þar voru lögin endan- lega samþykt, og einnig aukalög (kauptaxti). Að þessum fundi lokmim voru fje- lagskonur orðnar 98. Bráðabirðastjórnin skifti með sjer verkum þannig: Jónína Jónatansdóttir, formaðnr. Briet Bjarnhjeðinsdóttir, ritari. Karólina Sicmsen, varaformaður. .Tónína Jósefsdóttir, fjármálar. María Pjetursdóttir, gjaldkeri. Fyrstu lögin. Með þeim lögum er fjel. gefið nafnið: Verkakvennaf jelagið Fram- sókn, og þar er starfsemi þess á- kveðin og stefna mörkuð þannig (2. gr.): Tilgangur fjelagsins er: 1. Að stvðja og efla hagsmuni og atvinnu fjelagskvenna. 2. Að koma betra skipulagi á alla daglaunavinnu þeirra. 3. Að takmarka vinnu á öllum helgidögum. 4. Að efla menningu og samhug innan fjelagsins. Ennfremur er ákveðið, að fjelag- ið skuli stofna styrktarsjóð strax og það sjer sjer fært. (22. gr.). Þessum fyrstu lögum var fylgt ná- lega óbreyttum til 1920. Þá voru þau endurskoðuð og breytt lítilsháttar. Greinin um tilgang fjelagsins var orðuð þannig. Tilgangur fjelagsins er sá, að styðja og efla hag fjelagskvenna og menningu, á þann liátt sem kostur er á, meðal annars með þvi, að á- kveða vinnutíma og kaupgjald og stuðla að því, að verkalýðurinn taki sjálfstæðan þátt í stjórnmálum lands og bæjarfjelags. Við endurskoðun laganna 1934 var bætt við greinina þessum orð- um: „í samræmi við önnur verk- lýðsfjelög og Alþýðusamband ís- lands“. Annars eru lög fjelagsins enn i dag i langflestum atriðum óbreytt frá 1914. Stjórn. Fyrsta regluleg stjórn í fjelaginu var kosin i jan. 1915, og skiþuðu hana þessar konur: Jónína Jónatansdóttir, formaður, Karólína Siemsen, gjaldkeri, María Pjetursdóttir, varaformað- Briet Bjarnhjeðinsdóttir, ritari, Jónina Jósefsdóttir, fjármálaril- ari. Það er sjerkennilegt við þetta fje- lag, hvað mannaskifti í stjórn þess Jónína Jónatansclóltir. liafa verið fátíð. A 20 árum hefur að eins 21 kona tekið þátt í stjórnar- störfum. Verða þær taldar lijer, og hve mörg ár hver um sig liefur setið: Jónina Jónatansdóttir ........ 20 ár Jóhanna Egilsdóttir .......... 12 — KaróJína Siemsen ..............12 — Sigríður Ólafsdóttir .......... 7 •— Elínborg Bjarnadóttir ......... 5 — Elka Björnsdóttir ............. 5 GísJína Magnúsdóttir .......... 5 María Pjetursdóttir ........... 5 Svava Jónsdóttir .............. 4 — Herdis Símonardóttir .......... 3 — Jóhanna Þórðardóttir .......... 3 —- Jóníha Jósefsdóttir ........... 3 — Sigrún Tómasdóttir ............ 3 — Steinunn Þórarinsdóttir .... 3 Aslaug Jónsdóttir ............. 2 — Guðbjörg Brynjólfsdóttir . . 2 Guðrún Sigurðardóttir ......... 2 — Jóhanna Jónsdóttir ............ 2 — Briet Bjarnhjeðinsdóttir .... 1 Margrjet Jónsdóttir ........... 1 Þjóðbjörg Jónsdóttir .......... 1 — Þessar konur liafa gegnt lengst sama embætti: Jónína Jónatansdóttir, form. 20 ár KaróJina Siemsen, gjaldkeri 10 — .lóhanna Egilsdóttir, v.form. 7 — Elka Björnsdóttir, ritari .... 5 — Elinborg Bjarnadóttir, fjmrit. 5 — Þessar konur skipa stjórnina nú (kosnar í jan. s. 1.) : Jónína Jónatansdóttir, form. Jólianna Egilsdóttir, varaform. Svafa Jónsdóttir, ritari Áslaíig Jónsdóttir, gjaldkeri. Sigríður Ólafsdóttir, fjármálarit. Fundir og fjelagatal. Fjelagsfundir hafa verið reglu- Jega á tímabilinu okt.—maí, 1—2 á mánuði og stundum aukafundir, einkum í sambandi við kaupdeilur. Alls eru bókaðir 170 fundir eða 12 -13 á ári til jafnaðar. í ársbyrjun 1915 voru fjelagskon- ur orðnar 109. A því ári tvöfaldað- ist meðlimatalan. Næstu tvö árin gengu í fjelagið um 90 konur hvort árið. Á tímabilinu 1917- 1929 var árleg aðsókn mjög misjöfn, minst 1920, að eins 9 konur, og mest 1923, 95 konur. Árið 1930 gengu rúml. 300 konur í fjelagið, en um 80 árið efl- ir (1931). Síðan liafa gengið í fje- lagið um 200 konur hvert ár (1932 -1934). Vanhöld í fjelagatölu hafa auð- vitaða verið mjög mikil. Fjöldi af ógiftum konum liafa gengið í fjelag- ið, þegar þær stunduðu útivinnu, en horfið úr fjelaginu aftur. þegar þær tóku að gegna húsmóðurstörfum. tmsar aðrar orsakir liafa liöggvið skörð í fjelagsskapinn, (burtflutn- ingur úr bænum, tregða á greiðslu iðgjalda, dauðsföll o. fl.). 1 ársbyrj- un 1921 var meðlimatalan um 400, og hjelst svo litið hreytt til 1930. Nú eru fjelagskonur taldar um 900. Kaupgjaldsmál. Umbætur á launakjörum verka- kvenna Iiafa frá upphafi verið aðalmál fjelagsins. Eins og hjá öllum eldri verklýðs- fjelögum var byrjað á því, að fje- Jagið ákvað sjálft með fundarsam- þykt, hver vera skyldi launataxti félag'skvenna og um ýms önnur vinnuskilyrði. Þessi ákvæði voru lcölluð aukalög. Höfðu þau sama gildi og fjelagslögin, en voru ekki tekin inn í þau, vegna þess að húast mátti við tíðum breytingum á þeim ákvæðum. Þegar lög Framsóknar voru setl liaustið 1914, voru einnig samþykt ankalög. Fyrstu greinar aukalag- anna hljóðuðu svo: „1. gr. — Almennur vinnudagur innan verkakvennafjelagsins Fram- sókn er frá kl. (5 að morgninum til kl. 0 á kvöldin. Haldi félagskonur áfram vinnu eftir kl. 6 skal það tal- in eftirvinna. 2. gr. Alment verkakonnkaup sje 25 aur. um timann, lilunninda- laust, en 20 aur, þar sem skaffað er soðning og matreiðsla. Eftirvinna frá kl. (5-10 borgist ,með 30 aur. um tímann, en nætur- og sunnu- dagavinna með 35 aurum um tim- ann. Kaup þetta miðast við 1(5—60 ára aldur“. Um ákvæðisvinnu við fiskþvott var ekkert ákveðið. Þegar leið að þeim tíma um vet- urinn (1915), útivinna byrjaði átti

x

Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn
https://timarit.is/publication/661

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.