Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn - 25.10.1934, Blaðsíða 9

Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn - 25.10.1934, Blaðsíða 9
1914—1934 9 AFMÆLISBLAÐ VERKAKVENNAFJELAGSINS FRAMSÓKN 20 ára afmæli Verkakvennafélagsins Framsókn Lag: Hvað er svo glatt o. s. frv. Hjá karlmönnunum vinsælt var það ekki — þeim virtist upp í bekkinn færast skör, er konan tók að hrista sína hlekki og Iiugsa’ um það að liæta ögn sín kjör. Og því var löngum leiðin grýtt og nakin og langsótt varð hver minsta réttarbót. En konusálin — sé hún aðeins vakin — hún sækir fram, þótt hart sé undir fót! Og nú var byrjað. Nú var framsókn hafin, og nú er ekki hægt að stöðva för. Og bráðum verður æskan önnum kafin og ellin jafnvel rís úr sinni kör! Vér fylkjum liði og fram vér hiklaust sækjum, en flýjum ei, þótt skorti auð og seim. Vort starf er það að greiða úr fornum flækjum og frelsi og maiinjöfnuði að bjóða heim. Já, systir góð, ég veit þú vilt það ekki að venja biind þér leggi klafa um háls. Og þess vegna áttu að hrista þina hlekki og hætta ei fyr en þú er orðin frjáls! Og félag vort er þér til styrktar stofnað; þess starf er það að ryðja þína braut og hnippa í þær, sem hafa á verði sofnað og hendur látið falla sér í skaut. Vér höfmn fyrir aðra í anda brunnið og unnið margt til nytja vorri þjóð, og þaðan liafa hollir straumar runnið með liita og nýjan þrótt í freðið blóð. Þvi skulu vorir áhugaeldar brenna, þótt allavega snúist tímans hjól, uns rósir spretta á vöngum verkakvenna og veröld' þeirra fyllist yl og sól. Grétar Fells. sinni með öðruni landsfjelögum kvenna. í stjórnmálabaráttu Alþýðu- flokksins hefur fjelagið ált sinn mikla þátt. Fá fjelög liafa lagt til ]>etri fulltrúa til áróðurs í kosn- ingahríðum þeim, er flokkurinn Iiefur liáð öll þessi ár. Innan fje- lagsins er fjöldi áhugasamra og mikilhæfra kvenna, sem aldrei liggja á liði sínu, er samtökin kalla þær til starfs. Als þessa ber að minnast og' þakka á þessum merki- leg'u tímamótum fjelagsins. Mér er ljúft að minnast samstarfs- ins við Framsókn og fulltrúa henn- ar á liðnurn árum og vil sjerstak- lega i umboði bróðurf jelagsins, Sj ómannaf j elags Reykj avíkur, þakka konunum, er Framsókn skipa fyr og síðar, samstarfið á liðn- um árum og allan þann stuðning, beinan og óbeinan, er þær hafa veitt þvi fjelagi i baráttunni fyrir bættum lífskjörum og vænti þess, að það samstarf megi í framtlðinni verða órjúfanlegt. Að siðustu vil jeg sem starfandi formaður heildarsamtakanna hjer i bænum þakka fjelaginu og stjórn- endum þess samstarfið á liðnum árum og ötula framgöngu í efna- hags og menningarlegri baráttu verkalýðsins á Islandi. Sigurjón Á. Ölafsson. Verkakonur Sá, sem ferðast um mörg lönd, hlýtur að veita því eftirtekt, hve mikill er munurinn á kjörum verka- lýðsins i þeim löndum, þar sem verlclýðsfjelagsskapurinn er orðinn rótgróinn, og í hinum, þar sem eng- inn verklýðsfjelagsskapur er, eða liann er svo ungur og veikur, að hann má sin einskis. Þessi munur sjest grcinilega á því hvað verkalýð- urinn er ver til fara þar sem liann er óskipulagshundinn. Þegar borið er saman kaupið kemur i ljós, að það er þriðjungi til helmingi hærra þar sem fjelags- skapurinn er, en þar sem enginn fje- lagsskapur er. Já, meira að segja innan sama lands getur jjessi munur verið geysimikill. Það eru dæmi til þess hjer á landi, að í einu kauptúni, þar sem fjelagsskapur var, var kaupið þriðjungi hærra en í öðru kauptúni, þar sem verkalýðurinn var óskipu- lagsbundinn, og var þó ekki nema Iiálf dagleið á mótorbát á milli kauptúnanna. Munurinn á vellíðan fólksins á þessum tveim stöðum var auðsær, einkum var áberandi livað börnin voru illa klædd þar sem kaupið var lægra. Nú orðið eru flestir —- einnig þeir, sem eru á móti jafnaðarstefmmni —- farnir að játa, að verkalýðsfje- lögin sjeu nauðsynleg, og hefur mikil breyting skeð í þá átt, á þeim tuttugu árum, sem liðin eru siðan verkakvennafjelagið Fram- sókn var stofnað. Þó býst jeg við, að mikið skorti enn á, að menn skilji hvaða menningarlegt gildi verklýðsfjelagsskapurinn hefur. En það er þó auðvelt að gera sjer i hug- arlund hvernig ástandið hcfði ver- ið, þessi liðnu ár, ef verkalýðurinn hefði aldrei fengið nema tvær krón- ur fyrir liverjar þrjár sem hann liefur haft. Þó jnikið vanti á að verkalýðurinn hafi það húsnæði, sem viðunandi má kallast, þá er þó bersýnilegt, hve mikið verra það hefði verið þá, og hversu margfalt óhraustari þjóð þá hefði verið hjer

x

Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn
https://timarit.is/publication/661

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.