Afmælisblað Verkakvennafjelagsins Framsókn - 25.10.1934, Page 6
AFMÆLISBLAÐ VERKAKVENNAFJELAGSINS FRAMSÓKN
1914—1934
6
I byrjun ársins 1927 liófust samn-
ingar enn af nýju um kaup verka-
kvenna. Fór nú alt friðsamlega
fram, en þó urðu konur að sætta
sig við allmikla kauplækkun.
Samið var um 70 aur. í dagv., 90
aur. í eftirvinnu, 1 kr. í nætur- og
helgidagavinnu. Þvottur á þorski
2 kr. á 100.
Slóð þessi samningur óbreyttur
einnig næstu 2 ár. Á útmánuðum
1930 fór Framsókn fram á kaup-
liækkun, og átti stjórnin tal við út-
gerðamenn um það mál. Þeir tóku
ekki af um nokkra kaupliækkun, en
vildu enga samninga um það gera.
Út af þessu tók fjelagið það ráð,
að ákveða og auglýsa sjálft kaup-
taxta. Var það samþ. á fundi 14.
maí.
Þenna kauj)taxta sættu atvinnu-
rekendur sig við, og hefur verið
farið eftir honum siðan. Vegna þess
að þessi taxti gildir enn, þykir rjetl
að hirta hann hér allan:
KAUPTAXTI
Á fundi V. K. F. Framsókn 10.
janúar 1933 var samþyktur eftir-
skráður taxti:
Fyrir dagvinnu frá
kl. 7 árd. til kl. 6
síðd............. kr. 0,80 á klst.
Fyrir helgidagavinnu
og alla aðra vinnu
eftir kl: 6 að kvöldi — 1,50- -—
nema við saman-
tekningu við fisk-
þurkun kl. 0—8
að kvöldi .......— 1,00— —
Annar kaffitíminn sje borgaður,
þar sem hlunnindi eru, en báðir,
þar sem engin eru.
Sje unnið frá kl. 0 til 7 árd., greið-
ist sá tími með eftirvinnukaupi.
Þvottar.
Stórfiskur og langa pr. 100
stk.................... kr. 1,00
Smáfisluir, sem ekki má
fara yfir 20" ............. 1,05
Allur fiskur lengri en 20" — 2,00
Ýsa ........................ — 1,15
Ufsi ....................... — 1,30
Lahri, 18—20" ................ 0,80
do. undir 18" . . ......... 0,55
Styrktarstarfsemi.
Fjelagið hefur varið miklu fje á
hverju ári til styrktarstarfsemi inn-
anfjelags. Til styrkveiting'a var
framan af varið því fjc, sem inn
kom á skemtunum, „hasar“ og
Idutaveltum. Einnig var oft safnað
samskotum á fjelagsfundum.
Styrkur var veittur þeim fjelags-
konum, sem urðu fyrir slysum eða
jniklum veikindum. Venjulega licf-
ur liver styrkveiting úr fjelagssjóði
numið 50 kr., en nokkuð oft 100 kr.
í ársbyrjun 1920 var styrktarfje
aðgreint frá fjelagssjóði og stofnað-
ur sjersjóður i því skyni, sem nefnd-
ist „Styrktar- og sjúkrasjóður
verkakvennafjelagsins Framsókn“.
Stofnfje sjóðsins, lagt til úr f jelags-
sjóði, var 1000 kr. í reglum sjóðs-
ins er svo fyrir mælt, að höfuð-
stól megi aldrei skerða, en við hann
leggist á liverju ári 10% af vöxtum
og öðrum tekjum.
í þenna sjóð ihefir siðan runnið
ágóði af skemtunum, hasar, hluta-
veltum o. 11. Einnig liefir sjóðúrinn
fengið styrk úr ríkissjóði síðustu 5
árin, 500 kr. á ári (nema 1933, þá
400 kr.).
Höfuðstóll styrktarsjóðsins verð-
ur um næstu áramót full 8000 kr.
En svijjaðri upphæð er búið að út-
hluta í styrkjum síðan fjelagið var
stofnað.
Fjelagið hefir greitt iðgjald árlega
til „Styrktarsjóðs verkamanna og
sjómannafélaganna i Reykjavík“
siðan hann var stofnaður (1920), 50
aur. af liverri fjelagskonu á ári. Á
hinn bóginn hafa fjelagskonur not-
ið verulegra hlunninda úr þeim
sjóði. 1 stjórn þess sjóðs hefir jafn-
an verið kona úr Framsókn.
Fjármál.
Aðaltekjur fjelagssjóðs hafa ver-
ið ársiðgjöld f jelagskvenna. Þau
voru framan af mjög lág, að eins 1
kr. á ári frá fjelagsstofnun til 1919.
Þá í ársbyrjun var ársiðgjaldið
hækkað upp í 2 kr„ og rúmu ári
seinna var það liækkað um helming,
upp í 4 kr. Stóð svo til 1931 að árs-
iðgjaldið var enn hækkað upp i 8
kr„ og hefur verið svo síðan.
Það mun láta nærri, að fjelagið
Iiafi fengið inn í ársiðgjöldum 30
þús. kr. samtals.
En fjelagið hefur gert nokkrar
aðrar ráðslafanir til tekjuauka fyr-
ir sjóð sinn. Skemtanir Iiafa verið
haldnar i fjel. á hverju ári, ogstund-
um endurteknar. Oft hafa þær verið
í sambandi við afmæli fjelagsins, en
stundum stofnaðar sjerstaklega í
góðgerðaskyni (lil styrktar bág-
stöddum konum). Ágóði af skemt-
unum befir ýmist verið lagður i
fjelagssjóð um sinn, eða verið
varið heint til styrkveitinga. Ágóði
af skemtunum hefur alls orðið um
4500 kr.
Hlutaveltur hafa verið haldnar 7
sinnum, og samtals ágóði af þeim
orðið rúm 9000 kr.
Þá hafa konur gefið ýmsa lianda-
vinnu á „basar“ fjel. sem verið hef-
ur flest árin. Ágóði af því liefur oft-
ast numið nokkrum lnmdruðum á
ári, og er nú orðinn samtals tæp
6000 kr.
Dálítið fje liefur fjelaginu áskotn-
ast í gjöfum og áheitum, og nokkr-
um sinnuni hefur verið skotið sam-
an fje á fjelagsfundum, í góðgerða-
skyni.
Loks er þess að geta, að á síðustu
árum hefur verið veittur á fjárlög-
um lítilsháttar styrkur til styrktar-
sjóðs fjelagsins.
Aðalútgjöld fjelagsins liafa geng-
ið til flokksstarfseminnar út á við
og styrktarstarfsemi inn á við.
Til fyrirtækja og annarar starf-
semi Alþýðuflokksins liefur verið
vaxúð um 6000 kr„ og í sambands-
sjóð og sjóð fulltrúaráðs verkalýðs-
fjelaganna i Reykjavík um 7000 kr.
Til styrkveitinga til bágstaddra
fjelagkvenna hefur verið varið um
8000 kr.
Reksturskostnaður fjelagsins hef-
ur verið mjög litill. Þar liefur verið
gætt Iiins mesta sparnaðar. Stjórn-
endur fjelagsins hafa unnið sín
miklu og timafreku stjórnarstörf al-
gerlega kauplaust þessi 20 ár. Fyrstu
11 ár fjelagsins var ekki einu sinni
varið einni krónu fyrir innheimtu,
og vita þó flestir hvað það verk er
mikið í mannmörgum fjelögum.
Síðustu árin, eftir að iðgjöld hækk-
uðu og fjelagskonum fjölgaði, Iief-
ur verið greidd nokkur þóknun
fyrir innheimtuna.
Fjárreiður fjelagins og reiknings-
lialda hefur altaf verið i stökustu
reglu.
Alþýðusambandið og
Framsókn.
Þegar hafinn var undirbúningur
að stofnun Alþýðusamhands ís-
lands liaustið 1915 kaus Framsókn
2 konur (á fundi 10. nóv.) til þess
að taka þátt í því starfi, þær Jón-
ínu Jónatansdóttur og Karólíixu
Siemscn, og unnu þær að undir-
húningnum með fulltrúum frá öðr-
um verklýðsfjelögum.
Þegar ákvéðin var stofnun sam-
bandsins kaus fjelagið fulltrúa til
sambandsþings (og til þess að taka
sæti í Fulltrúaráði verklýðsfjelag-
anna í Reykjavík) þær:
Jóninu Jónatahsdóttur,
Karólínu Siemsen,
Maríu Pjetursdóttur og
Elku Björnsdóttur.
Þessar konur liafa síðan átt sæti
í fulltrúaráðinu, 4 ár eða fleiri:
Jónína Jóntansdóttir ......... 13 ár
Jóhanna Egilsdóttir .......... 10 —
.Tóhanna Jónsdóttir ........... 8 —