Kylfingur - 01.06.1935, Blaðsíða 8

Kylfingur - 01.06.1935, Blaðsíða 8
2 KYLFINGUR Næsta skrefið er að gefa út golfblað. Stjórnin þarf að koma ýmsum tilkynningum og upplýsingum til meðlima klúbbsins, og vill heldur senda þeim það prentað, en þylja það upp á fundum. Hún vill láta prent og pappír geyma frásögn um þennan sögulega atburð og það, sem af honum leiðir í nánustu framtið. Hún vill með innlendum og útlend- um greinum og golffréttum halda áhuga kylfinganna vak- andi og á þann hátt vinna að viogangi leiksins. Hún vill, í stuttu máli sagt, hafa málgagn handa sér og félagssystkinum sínum. Hún hefir skírt það Kglfing og vonar, að ykkur lítist vel á barnungann. Kylfingur verður ein örk, hvert blað, í Eimreiðarbroti, kem- ur út eftir þörfum, helzt einu sinni í mánuði yfir sumartím- ann, og kostar 2 kr. árgangurinn til félaga. Þess skal getið, að ritstjórinn mun þakksamlega taka á móti greinum og ljóðum um golf til birtingar í »Kylfing«. Skýringu á nafninu er að finna á öðrum stað í þessu blaði.. Lög fyrir GolfkJúbb íslands. I. Golfklúbbur íslands hefir að markmiði að glæða áhuga fyr- ir golfíþrótt. Heimilisfang klúbbsins er í Reykjavík. II. Inntöku í klúbbinn fá karlar sem konur, nái þeir einróma samþykki klúbbstjórnar. Tuttugu ára aldur skilur milli Juniores og Seniores. Inntökugjaldið er kr. 100 fyrir Seniores og kr. 50 fyrir Juniores og greiðist það við innritun. Heimilt er

x

Kylfingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.