Kylfingur - 01.06.1935, Blaðsíða 14

Kylfingur - 01.06.1935, Blaðsíða 14
8 KYLFINGUR við fjölda góða borgara bæjarins höfum við ráðið, að áhugi myndi nægur, ef menn aðeins vildu kynna sér málavöxtu. Fyrir því viljum vér samkv. umboói fyrnefndra áhugamanna bjóða yður á STOFNFUND GNLFKLÚBBS ÍSLANDS, sem við höfum ákveðið að halda i Oddfellovvhöllinni föstudaginn 14.. des. n. k. kl. 8.30 e. h. DAGSKRÁ: 1. Sendiherra, Sveinn Björnsson flytur erindi um golf. 2. Gunnlaugur Einarsson, læknir, skyrir frá tildrögum til félagsstofn- unar hér, og sýnir smá filmu, sem hann hefir sjálfur tekið af kennara sinum við golfieik. 3. Umræður um stofnun golfklúbbs, og að þeim loknum atkvæða- greiösla um að stofna hann. 4. Lagt fram bráðabirgða lagafrumvarp fyrir golfklúbb, rætt og leit- að samþykkis á því. 5. Stjórnarkosning o. fl, samkvæmt lögum. 6. Önnur mál, t. d. ákvörðun um tilboð kennarans. í þeirri von, að þér komið á fundinn til að heyra málavexti og til að taka afstöðu til þessa sports, ef þér eruð ekki þegar ákveðinn, kveðjum við yður með vinsemd og viróingu, Gunnlaugur Einarsson Gunnar Guðjónsson lœknir. skipamiðlari. Valtýr Albertsson lœknir. Fundarstjóri á stofnfundi þessum var Guðm. Hlíðdal lands- símastjóri, en Einar E. Kvaran bankabókari, ritari. Á fundin- um var samþykt tillaga frá nefndinni um að stofna golfklúbb, er hjeti Golfklúbbur íslands, lög fyrir klúbbinn og siðan kosn- ir í stjórn þeir Gunnlaugur Einarsson, læknir, form., Gunnar Guðjónsson, skipamiðlari, ritari, Gottfred Bernhöft, sölustjóri, gjaldkeri. Meðstjórnendur: Valtýr Albertsson, læknir, Eyjólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri, Guðmundur Hlíðdal, landssimastjóri, og Helgi H. Eiriksson, skólastjóri. Stjórninni var falið að ráða kennara og sjá um húsnæði til kennslu.

x

Kylfingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.