Kylfingur - 01.06.1935, Síða 12

Kylfingur - 01.06.1935, Síða 12
6 KYLFINGUR fullgerða reikninga fyrir s. I. ár, og endurskoðendur skulu hafa skilað aths. sínum til stjórnarinnar V2 mánuði fyrir aðalfund. Síðan skulu reikningarnir liggja frammi til aðal- fundar hjá gjaldkera til frjálsra afnota fyrir félaga. Bráðabirgðaákvæði. Lög þessi öðlast gildi um leið og stofnfundur hefir sam- þykkt þau, og stofnfundur kemur i stað aðalfundar 1935. Lögin gilda sem bráðabirgðalög til aðalfundar 1936. Þannig samþykkt á stofnfundi 14. desember 1934. Golfklúbbur íslands. Sögulegt yfirlit. Ritstjórn „Kylfings" þykir hlýða að hann, framar öðrum heimildum, geymi sögu klúbbsins jafnóðum og hún gerist, og að fyrsta blað hans skýri frá stofnun klúbbsins, í stórum dráttum, og tildrögum hennar. Ýmsir íslendigar, sem dvalið hafa ytra um Iengri eða skemmri tíma, hafa kynst golfleik utanlands, og sumir jafn- vel lært hann. Má þar einkum nefna hr. Svein Björnsson, sendiherra íslands i Danmörku, sem hefir iðkað golf í mörg ár. — Sumaríð 1934 dvöldu læknarnir, Gunnlaugur Einarsson og Valtýr Albertsson, utanlands um tíma, og kyntust þá golf og og byrjuðu að læra það. Ljeku þeir golf daglega í heilan mánuð áður en þeir hurfu heim aftur. Þegar hingað kom, gátu þeir ekki haldið við því, sem þeir höfðu lært, og því síður tekið framförum, þareð hjer vantaði alt til kylfingar. Þeir ræddu því brátt um stofnun golfklúbbs hjer i Reykjavík, töluðu við nokkra líklega þátttakendur og

x

Kylfingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.