Kylfingur - 01.02.2007, Qupperneq 1
KYLFING
50. ÁRG. - 1. TBL. - FEBRÚAR 2007
Brynjar Geirsson ráðinn
íþróttastióri hjá GR
Brynjar Eldon Geirsson hefur verið ráðinn íþróttastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur. Brynjar
mun hafa yfirumsjón með afreks- og unglingaþjálfun klúbbsins. Brynjar hefur verið yfir-
kennari lijá GKG síðustu þrjú árin og er yfirmaður golfdeildar hjá fþróttaakademíunni í
Reykjanesbæ. Brynjar útskrifaðist sem golfkennari frá PGA í Þýskalandi 2003.
„Ég hef mikinn metnað fyrir
því sem ég er að gera og Þnnst
þetta vera skref upp á við. Ég
átti frábær þrjú ár hjá GKG
og tel mig hafa skilað ágætu
verki þar. Mér fannst því kom-
inn tími til að breyta til, enda
aðstæður hjá GR þær bestu á
Islandi. GR er stærsti klúbbur
landsins og hefur alltaf verið.
Ég ætla mér að ná árangri í
þessu starfi. Það gerist ekki
stærra starf fyrir golfkennara
á íslandi heldur en að vera
íþróttastjóri GR“ sagði Brynjar í
viðtali við blaðamann Kylfmgs.
Nú ert þú yfirmaður Iþrótta-
akademíunnaríReykjanesbœ,
fer það saman að vera einnig
íþróttastjóri GR?
„Þetta getur farið vel sarnan.
Starf mitt í Íþróttaakademí-
unni er skólatengt og ég kenni
þar tvo tíma í senn fjórum
sinnum í viku. Það er ekki
mikil viðvera, ef menn telja að
það muni rekast á hvort ann-
að mun ég skoða það. Ég tel
þetta líka geta farið vel sam-
an þar sem hægt er að tengja
afrekskylfingana inn í Iþrótta-
akademíuna. Eins get ég hugs-
anlega nýtt mér allar aðstæður
í Íþróttaakademíunni og hæfa
þjálfai’a þar til að aðstoða við
starfið hjá GR. íþróttaakadem-
ínan á að vera leiðandi í öllurn
íþróttagreinum og þar á að
vera hægt að sækja gagnlegar
upplýsingar."
Þú ert einn af eigendum Pro
golf ehf. sem var að taka yfir
rekstur Bása, kemur það ekki
til með að rekast á við starfið
þitt hjá GR?
„Nei, það áekki að geraþað. Ég
skipulegg rnitt afreks- og ungl-
ingastarf en öll viðskipti núlli
Pro Golf og GR verður á milli
framlcvæmdastjóra Pro Golf
og GR og þar kem ég hvergi ná-
lægt. Það er mjög skýrt tekið á
þessu í samningi mínum við GR
að ég sinni eingöngu afreks- og
unglingastarfi GR. Ég er að-
eins einn af hugmyndasnúðum
Golfskóla Pro Golfs, en er ekki
að fara að kenna þar sjálfur."
Megum við eiga von á mikl-
um breytingum í þjálfun af-
rekskylfinga hjá GR?
„Já, ég mun gera það eins og
ég held að virki best. Það era
vissulega margar leiðir á topp-
inn, ég hef trú á minni aðferð
og breyti því sem breyta þarf.“
Hvaða golfkennarar koma
með þér inn % þetta teymi?
„David Bamwell, Ástráður Sig-
urðsson munu aðstoða mig
mikið í unglinga- og afreks-
starfi GR auk þess sem Ólafur
Már Sigurðsson mun sinna
ýmsum verkefnum.
Golfskóli Pro Golfs, sem við
opnum í Básum nú í febrúar,
verður fyrsti sinnar tegundar
hér á landi þar sem allir kenn-
ai’ar skólans vinna að því sama.
Rauði þráðurinn í kennslunni
verður lagður af mér.
David, Ástráður og Ólafur
Már munu einnig kenna við
Golfskólann en við munum
hugsanlega bæta við okkur
kennuram þegar líða tekur á
sumarið.“
Er golfskólinn Pro Golf sem
stofnaður verður í Básum, á
vegum GR?
„Nei, í raun er golfskólinn
sér eining en verður rekinn í
rnjög nánum tengslum við GR.
Þannig er það víða erlendis.
Við erum að taka golfkennslu
á íslandi og setja hana upp á
hærra plan. Gofskólinn verður
opirtn fyrir alla kylfinga lands-
ins.“
Konur
ÍGR!
Galakvöldið verður
10. mars i Golfskál-
anum Grafarholti.
Verð kr. 5.300
og innifalið er
fordrykkur og
máltíð. Söngur, skemmtun,
happdrætti og svo verða veitt
verðlaun fyrir púttmeistarann
2007. Skráning hefst 26. febr.
hjá Hörpu í síma 585-0200 eða
á netfangið harpa@grgolf.is.
Þá er bara að fara að kaupa
eða sauma kjálinn!
Framkvæmdastjóraskipti hjá GR:
Garðar Eyland
íj stað Margeirs
Garðar Eyland er nýr framkvæmdastjóri GR frá
og með 1. nóvember og tók hann við af Margeiri
Vilhjálmssyni sem lét af störfum að eigin ósk.
Margeir hefur starfað hjá GR frá árinu 1995 en
heldur nú til nýrra verkefna hjá Golfi ehf., sem
vinnur að uppbyggingu golfvallar „Black Sand“ í
Þorlákshöfn.
Garðar var formaður GR á áranurn 1993-1998
og sat í stjóm klúbbsins rnörg ár þar á undan.
Hann hefur verið undanfarin ár framkvæmdastjóri
Golfldúbbsins Odds.