Barnablaðið - 01.08.1946, Blaðsíða 16
38
BARNABLAÐIÐ
eina Biblían, sem finnst milli Harr-
ent og sjávar. Gleymdu ekki aðvör-
un minni, enginn má vita hvar hún
er.“
Það leið ekki á löngu áður en
sendimenn drottningar komu til
þorpsins til að leita að Biblíu, sem
þeir kváðust vissir um að fyndist
þar, og leituðu þeir rækilega, en
árangurslaust.
Fólkið í þorpinu neitaði ákveðið
að taka við trúarbrögðum drottn-
ingar, og af því að smiðurinn var
hinn eini, sem gat lesið, var honum
varpað í fangelsi. Elsie var mjög
hrygg, þrátt fyrir að góðir nágrann-
ar reyndu að sýna henni kærleika.
Kinnar hennar urðu fölar, er hún
minntist Biljlfunnar í smiðjuveggn-
um, og hverju hún hefði lofað föð-
ur sínum.
Aftur komu hermennirnir og leit-
uðu í öllum húsum, og að lokum
heyrði Elsie þá segja, að Joeir vildu
brenna hús og smiðju járnsmiðsins,
})ví að þar hlyti Biblían að vera
falin.
Þegar hermennirnir komu, hljóp
Elsie út fyrir garðinn og fleygði sér
grátandi niður á milli runna. Hún
óttaðist að hermennirnir fyndu sig
og píndu til sagna.
Hún andaði léttara, Jiegar hún
heyrði hermennina ganga burtu.
Hún fann reykjarlykt, og er hún
leit upp, sá hún logann upp úr })ak-
inu. Hún þaut á fætur, gleymdi
öllu öðru en orðum föður síns, að
J)etta væri eina Biblían miLli Harr-
ent og sjávar. Þótt það kostaði liana
lífið, yrði hún að bjarga Biblíunni.
Svo hratt sem fæturnir gátu borið
hana hljóp hún að smiðjudyrunum,
logarnir sleiktu á móti henni og um
hendur hennar, er hún teygði sig
upp fyrir hurðina til að ná í leyni-
ásinn, sem lokaði skápnum. Henni
heppnaðist að ná bókinni, og hálf-
köfnuð af reyk, og brunnin bæði í
andliti og á höndum, komst lnin út
í garðinn. Með blóðugum höndum
gróf hún hólu í jörðina, klæddi af
sér J)að sem óbrunnið var af kjóln-
um og vafði ntan um bókina og
breiddi mold yfir aftur. Skömmu
seinna fannst hún meðvitundarlaus
við brunninn, J)ar sem hún ætlaði
að hlökkva sviðann með köldu
vatni. Hún var tekin og henni
hjúkrað, og hrestist hún brátt, og
henni var hrösað mikið, er hún
sagði frá, hvernig hún hefði bjarg-
að og falið hina heilögu bók. Það
heppnaðist að varðveita Biblíuna,
oo; við getum verið viss um, að
margir sögðu börnum sínum frá,
livernig Elsié bjargaði Biblíunni.
Tímarnir breyttust í Engflandi,
og fólk fékk meira trúfrelsi, og
mörgum árum seinna fluttu guð-
hrædd hjón yfir á strönd Nýja Eng-
lands. Konan var lang-ömmu-barn
Elsie, og flutti með sér hina dýr-
mætu eign: Biblíu járnsmiðsins.
Þýtt úr Evangelical Christian.