Barnablaðið - 01.08.1946, Blaðsíða 17
BARNABLAÐIÐ
39
Það hefur verið borin fram ósk
um, að birta mynd af ritstjóranum
og helztu sölumönnum Barnablaðs-
ins.
Mér hefur reynzt erfitt að ná til
sölumannanna í myndaleit, en um
leið og ég birti þessa mynd af sjálf-
um mér, þakka ég öllum sölumönn-
um blaðsins auðsýnda hjálp og vin-
semd í þágu Barnablaðsins.
Og þegar ég nó — að líkindum í
maíbyrjun — kveð land og þjóð,
óska ég Barnablaðinu góðs gengis í
framtíðinni. Og á kveðjustundinni
bið ég Guðs blessunar til handa ís-
lenzku þjóðinni, sem ég hef reynt
að kynnast til hlítar. Henni mun
ég unna, þótt árin líði og breið vík
skilji að vini.
Yðar einlægur vinur.
Nils Ramselius.
*
Eftirskrift.
Ef einhverja skyldi langa til að
Lind í Ijúfum draumi
Lind í ljúfum draumi
leikur björtum straumi.
Dylst oft, djúp og tær,
dagleið vorri nær.
Lífsvatn þeirrar lindar
losar grómið syndar, —
dýrast dreypi-flóð,
Drottins Jesú blóð.
Fangi í fjötrum nauða
fann þar líf í dauða.
Ég í sorg og synd
sömu kom að lind.
Lindin hjartans heima,
hún mun ávallt streyma,
— sælu og friðar full
flytja lífsins gull.
Sælu sjúkum búa,
sorg í gleði snúa,
unz vér eigum jól
öndvert lambsins stól.
Síðan sá ég þenna
svala-strauminn renna,
tungan temur sig
að tala og syngja um þig.
senda mér nokkrar línur, verður
heimilisfang okkar í Svíþjóð:
Box 6082, Filadelfia, Stokkholm 6,
Svíþjóð.