Barnablaðið - 01.10.1949, Page 9

Barnablaðið - 01.10.1949, Page 9
BARNABLAÐIÐ 7 ('Framhald). Hún óttaðist föður sinn meira en lögregluna. Hún gerði sér í hugar- lund refsinguna, sem biði hennar heima. Irma var líka niðurdregin. Hún hafði ekki svo mikið að óttast heima. Þar var ekki mikið fengist um svona lagað, en hún óttaðist lög- regluna. „Jæja, ætli við hypjum okkur ekki í skólann aftur,“ sagði Irma þegar þær voru komnar út úr skrif- stofunni. „Vertu nú ekki svona eymdarleg á svipinn." Að svo mæltu hljóp hún upp tröppurnar og skyldi Gróu eina eftir. Gróa gekk hægt af stað, en hún fór ekki inn í skólastof- una, hún gat ekki hugsað til þess að mæta háði og spotti skólasystkin- anna. Næstum ósjálfrátt báru fæt- urnir hana eftir götunni. Fyrir hug- arsjónum hennar birtust myndir af þeim tíma, þegar pabbi hennar hafði vinnu í verksmiðjunni. Hún minntist þess, hvernig hún hljóp á móti honum þegar hann kom úr vinnunni. Svo lyfti hann henni upp á herðar sér og bar hana heim, þar sem ríkulegt matborð beið þeirra. Þreytan og sulturinn ráku hana heim á leið þrátt fyrir hræðsluna við móttökurnar. Skjálfandi læddist hún upp tröpp- urnar. Hún hafði reikað um tímun- um saman og það var komið langt fram á kveld. Með sjálfandi höndum opnaði hún dyrnar inn í fátæklegu íbúðina. Móðir hennar sat á bekknum í káp- unni og neri hendur sínar í örvænt- ingu. Faðirinn gekk eirðarlaus fram og aftur, frá sér af reiði yfir þeirri svívirðu, sem Gróa hafði leitt yfir þau. Hann var ekki með sjálfum sér og öskraði eins og dýr meðan hann tyftaði Gróu miskunnarlaust. Móðirin reyndi árangurslaust að hafa áhrif á mann sinn. Hún skildi að Gróa þurfti annars með fremur en refsingu og harðyrði. Faðirinn var ófáanlegur til þess að auðsýna miskunn. „Hvaðan eigum við að fá peninga til þess að borga það, sem þú hefir stolið, þjófurinn þinn?“ æpti hann. „Er ekki nóg að við er- um vesöl og fátæk. Nú getur fólk líka fengið ástæðu til þess að kalla okkur þjófa. Þú ættir skilið að ég gerði út af við þig, illyrmið þitt.“ Gróa æpti hástöfum af hræðslu og sársauka meðan faðirinn refsaði henni og þegar hann uppgefinn af æðiskastinu fleygði henni frá sér á gólfið, hnipraði hún sig grátandi saman. Loksins tókst móður hennar að koma henni í rúmið. „Svona, Gróa mín,“ sagði hún

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.