Barnablaðið - 01.10.1949, Page 12

Barnablaðið - 01.10.1949, Page 12
10 BARNABLAÐIÐ Drengurinn sem gleymdi að þakka „Karl, viltu lána mér bókina þína með fallegu myndunum, þú notar hana ekki sjálfur núna.“ Það var Anna litla, sem talaði til bróður síns. „Nei, þú færð ekki bókina mína,“ svaraði Karl önugur. Hann fleygði kubbununt sínum og flýtti sér að hrifsa bókina frá systur sinni. Hún gekk hrygg til mömmu sinnar, sem sat og saumaði. Anna lagði höfuðið í kjöltu hennar og greip fast um kné hennar. „Vertu ekki leið yfir þessu, stúlk- an mín. Ég hefi heyrt og séð hve slæmur hann hefir verið. „En ég get ekkert gjört, hann á sjálfur bókina og ég get ekki neytt hann til að lána hana.“ „Sjáðu, hérna er fallegt efni, nál og spotta hefir þú í saumakassan- um. Saumaðu nú fínan kjól á dúkkuna þína!“ Anna flýtti sér burt mjög ánægð, hún fann saumadótið og settist við vinnuna í næsta herbergi. Móðirin kallaði á Karl. „Hvers vegna vildir þú ekki lána Önnu bókina?“ „Anna á sjálf bækur,“ svaraði hann niðurlútur. „Elsa frænka á líka bækur sjálf, en samt fékk hún lánaða bók hjá mér í gær. Manstu hve glað.ur þú varst yfir heimsókn hennar, þegar hún gaf þér appelsínu? Ekki hefði nú systir þín eyðilagt bókina fyrir þér. Hugsaðu hve góð og hjálpfús Anna er við þig. Mundu nú þetta í næsta skiptið, ef Anna skyldi segja nei, ef þú biður hana einhvers.“ Karl fór aftur að leika sér að kubbunum sínum, hann var hálf skömmustulegur. Stundu seinna kom Anna hlaup- andi inn með stóra köku í hendinni. „Mamma, sjáðu fínu kökuna, sem frú Svensen gaf mér.“ „Ó, Anna, gefðu mér svolítið af henni!“ Án þess að hugsa sig um, skipti hún kökunni í tvennt og rétti ann- an helminginn að bróður sínum. Hann greip hana áfjáður og var bú- inn að bíta stórt stykki úr henni, þegar hann kom auga á móður sína. Hún horfði á hann með því augna- ráði, sem minnti hann á nýafstaðið samtal. Karl horfði niður fyrir sig og roðnaði, svo lét hann strax köku- stykkið frá sér og flýtti sér til Önnu. „Þakka þér fyrir, kæra Annal" Hann hafði ekki einu sinni þakkað systur sinni. Litlu seinna settist Karl aftur á gólfið með kubbana sfna og Anna með saumadótið sitt. Að síðustu ultu allir kubbarnir um. Hann

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.