Barnablaðið - 01.10.1949, Side 16

Barnablaðið - 01.10.1949, Side 16
14 BARNABLAÐIÐ Tíminn leið. Elísabet var ekki lengur eins eftirsótt af kunningjum sínum. Margir vinirnir sviku hana, og hún var oft ákaflega einmana í heiminum. Jane hélt áfram að starfa fyrir Jesú. Hún var ávallt upptekin við að hjálpa öðrum. Hún eignaðist alls staðar vini, hvar sem hún fór, því að hún var alltaf með vingjarnlegt bros á vörum og talaði alltaf vingjarn- lega við alla sem hún mætti. Af and- liti hennar ljómaði innri fiiður og gleði. Allir gátu að minnsta kosti séð, að hún var lærisveinn Jesú og hún var að reyna að feta í fótspor Hans. Einnig þú getur verið Ijós í þess- um heimi, endurskin af Jesú Kristi, bara ef þú helgar honum algerlega líf þitt. G. H. Þegar hjartað talar „Mamma!“ Frú Rósa leit upp frá því, sem hún var að sauma. „Já, hvað vilt þú, Áki minn?“ „Hefi ég verið góður í dag?“ „Já, þú hefir verið reglulega góður og duglegur í allan dag. En farðu nú að sofa.“ Frú Rósa flutti vinnulampann lengra frá Áka, svo að birtan félli sem minnst á Áka, sem lá í litla rúminu sínu og átti að sofa. Svo varð allt hljótt litla stund, þangað til Áki reisti sig upp og sagði: „Mamma, hugsar Guð eins og þú, mamma?" Frú Rósa leit upp og hugsaði um spurninguna, sem hún varð að svara. „Nei, það gerir hann ekki, því að það stendur í Biblíunni, „að mínar hugsanir eru ekki yðar hugsanir," svaraði hún um síðir. En nú skalt þú fara að sofa og vera ekki að hugsa um neitt.“ Áki lokaði augunum og lá hljóð- ur langa stund. En svo settist hann upp í rúminu og byrjaði að tala. „Heyrir Guð allt?“ spurði hann. „Já, það allra ljótasta og versta. En <ægna hvers spyrðu einmitt nú, þegar þú átt að fara að sofa?“ „Jú, vegna þess, að ég er svo hræddur um að Guð hafi séð og heyrt, þegar ég hló að Haraldi, því að hann var svo skrítinn þegar hann var að reyna að stökkva eins og við.“ Haraldur var heilsulítill 8 ára drengur, og hafði alltaf verið haltur og gat ekki hoppað og hlaupið eins og aðrir drengir. „Já, Áki, það heyrði Guð og sá. Og það var mjög ljótt af þér að gera þetta.“

x

Barnablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.