Barnablaðið - 01.10.1949, Blaðsíða 19

Barnablaðið - 01.10.1949, Blaðsíða 19
LÖGREGLUMAÐURINN OG BÆN EIRÍKS LITLA. (Framhald af 2. síðu). uði, í minnsta lagi, áður en þér getið stigið í fætuma, og þér megið vera nijog þakklátur fyrir það.“ „Þakklátur!" Orðin hljómuðu miður hlýlega frá vörum hans. Það var auðheyrt, að biturleiki og hryggð höfðu fyllt hjarta hans við tilhugsunina um að verða að dvelja vikur, já, ef til vildi mánuði á þessum ógeðfellda stað. En rétt í því að hann með gremju sneri höfðu sínu, varð honum litið inn í athugul augu, er lýstu í senn bæði ótta og forvitni. Tillitið kom frá saklausum, bládjúpum bamsaugum og það þrengdi sér inn í hjarta hans og vitund. Með hlýlegri feimnisrödd, spurði barnið í lágum rómi: „Er lið- anin nokkru betri nú, hr. lögreglumaður?" Lögreglumaðurinn svaraði ekki samstundis. Hann var svo einkennilega hrifinn af augum þessa litla, alvörugefna, en jafnframt skilningsríka og elskulega drengs. Eiríkur end- urtók spumingu sína, og loks gaf lögreglumaðurinn svar, meðan hann horfði með athygli á drenginn. „Betri!“ Og því næst hélt hann áfram: „Ekki vitund, en þú. hver ert þú og hvað heitir bú?“ „Ég heiti Eiríkur Nesset, ég hefi legið lengi hér. Ég get ekki lengur gengið, því að mér er svo illt í fótunum, en ég ætla að vera ákaflega ró- legur og þægur, því að systirin segir að þér séuð Iögreglumaður.“ Þrátt fyrir hinar sára kvalir, gat lögreglumaðurinn ekki stillt sig um að hlæja að þessum orðrnn. En við það varð Eiríkur litli nokkru djarfari. Ifann hugsaði sem svo: „Lögreglumaður, sem hlær, getxu: ekki verið vondur maður!“ Því næst byrjaði hann að segja þessum nýja félaga sínum eitt og ann- £>ð, sem við hafði borið, unz hjúkrunarkonan kom og traflaði samtalið. Það atvikaðist því þannig, að lögreglumaðurinn hafði mjög lítinn tíma til þess að íhuga ástæður sínar, sem líka voru langt frá að vera honum til uppörfunar. Það var hræðileg tilhugsun fyrir hinn þróttmikla starfs- mann, að þurfa, ef til vildi um langan tíma, að vera algerlega iðjulaus. Þegar leið að kvöldi, barst rödd Eiríks litla aftur að eyrum hans. Hann talaði í hálfiun hljóðum við hjúkrunarkonuna, og lögreglumaðurinn heyrði allt, sem hann sagði. „Ég hefi veitt honum eftirtekt, systir,“ sagði hann, „og ég hugsa að hann biðji ekki, en ég held að það sé af því að kvalirnar, sem hann líður, séu of miklar til þess að hann geti beðið. Þegar mér Iíður mjög illa í fæt- inum, get ég ekki beðið, ég get ekkert nema grátið. Það getur verið þann- ig með hann, en Iögreglumaður grætur nú náttúrlega ekki? Eða hvað lieldur þú, systir?“ (Framhald á 4. síðu).

x

Barnablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.