Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1887, Síða 11

Sameiningin - 01.04.1887, Síða 11
■27- indómsins, að hinar grimmu og blóöugu ofsóknir frá hálfu Gyð- inga og heiðingja gengu yfir kristna menn. Hinn heiðni róm- verski sagnaritari Tacitus segir frá því, hvílíkr grúi af kristn- um mönnum hafi verið í Rómaborg um árið G4, og hin hrylli- lega grimmd, sem þá var farið við þá að beita, að boði Nerós keisara, átti að upp rœta það hjá þessu fólki, er þessi merki rit- höfundr kallar „voðalega hjátrú", sem auðvitað fremr öllu öðru var trúin á guðdórn Jesú og upprisu hans frá dauðum. Ann- að dœmi má nefna: I byrjan 2. aldar ritar Plinius landstjóri í einu fylki Litlu-Asíu Trajan keisara í Róm bréf og skýrir honum frá, hvílík mergð kristinna manna sé í umdœmi sínu, og biðr hann segja sór, hvernig hann eigi með þá að fara. Úr játning einstakra ákærðra kristinna manna, sem aftr lrafi kall- að kenning sína, til fœrir hann þetta meðal annars: að þeir só vanir að koma saman á ákveðnum degi fyrir birting og að syngja víxlsöngva til Krists sem guðs. Svo það er þá algjörlega víst, að í fyrstu kristni trúði almenningr í hinum kristnu söfnnðum því að Jesús Kristr væri guð, og fyrir þá trú var það að ofsóknirnar voru látnar dynja yfir kristna menrr. Og menn sjá, að kenning nýja testamentisins viðvíkjandi Jesú Kristi er alveg samhljóða við þá trú, er postularnir boðuðu þjóðunum og setn frá upphafi var lífsaflið mikla meðal kristinna inanna. Jesús er sannarlega upp risinn. ]>aö er söguleg vissa, sem eigi verðr hrakin. En sú vissa hjálpar hinum einstaka manni ekkert, ef Kristr er ekki líka upp risinn í hjarta hans. Ef Kristr er elcki upp risinn í þér, maðr, þá er trú þín ónýt. En ef þú liefir leyít honum að upp rísa í þér, þá berðu líka stöðuga sönnun í hjarta þínu fyrir því að hann sé guð blessaðr um aldir alda. Lexfur fyrir sunnudagsskólann : annar ársfjórðungr 1887. 5. lexía, sd. 1. Maí: ísrael í Egyptalandi(2. Mós. 1,6-14). '6. lexía, sd. 8. Maí: Barnið Móses. .. .(2. Mós. 2, 1-10). 7. lexía, sd. 15. Maí: lvöllun Mósesar.. .(2. Mós. 3, 1-12). 8. lexía, sd. 22. Maí: Páskalambið.. . .(2. Mós. 12, 1-14). !). lexía, sd. 29. Maí: Rauðahafið. . . .(2. Mós. 14, 19-31). NÝ RIT,—í sumar, sem leið, hélt cand. theol. Hafsteinn Pétrsson í Reykjavík fyrirlestr um Grundtvig, hinn alkunna

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.