Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.04.1887, Qupperneq 15

Sameiningin - 01.04.1887, Qupperneq 15
—31— leggja þeir í sölurnar til þess aö breiða það, er þeir kalla evan- gelíum kristindómsins, út á rneðal hinna myrkvuðu mannssálna í heiðingjalöndunum í samanburði við kristniboð kirkjudeild- anna, er Janson kallar „rétttrúaðar“ í háði? Hve kröftugr er kærleikr í/míara-kristindómsins, þá er til þess kemr að leggja lífið í sölurnar fyrir milíónirnar í hinum yztu andlegu myrkr- um hór á jörðinni ? það er lítið annað kunnugt af þeirra kristni- boði á þessari öld en það, að þeir hafa sína agenta riti hingað og þangað í kjölfari þeirra kirkna, er trúa á Jesúm eins og hin helga ritning vor lýsir honum, en þó naumlega annars staðar en þar sem allra þæginda verðr notið í jarðneskum efnum, og tína til sín rotnu fiskana, sem slœðzt hafa með í net þessara kirkna, eða, ef menn vilja heldr orða það svo, hafa veiðistöð í sjálfri kristninni með þeim huga að taka það, er vér köllum kristna trú, frá svo mörgum sem þeim er unnt. Ef kærleikr Únitara er svo mikill út af hinni svo kölluðu trú þeirra, eins og hr. Janson gefr í skyn, hví flýta þeir sé þá ekki út á meðal milíónanna, sem ekki hafa minnstu kristindómsskímu, til þess að bregða þar upp ljósi í myrkrunum ? það að þeir gjöra það ekki sýnir einmitt, að kærleikr þeirra er næsta daufr, og að þeir standast lengr en flestir aðrir að horfa upp á þá, er í verstar ræningjahendr hafa hrasað hér við veginn og liggja þar andvarpandi í blóði sínu,— hjálparlausa. Huggurn oss við það, hugsa þeir, að það er engin eilíf fyrirdœming til; þessir aumingjar kveljast. þó ekki eilíflega. Og svo sitja þeir rólegir heima, án nokkurs heiðingja-kristniboðs, og halda að sér höndum. það er alkunnugt að um kristniboð var nálega alls ekkcrt hugsað í hinum prótestantiska heimi meðan vantrúin, Únitara-stotmin, var þar ráðandi í kirkjunni á síðast liðinni öld. Af hverju ? Af því að þegar trúin á hið yfirnátt- úrlega í kristindóminum er út dáin, þá er kærleikrinn um leið farinn. Kristofer Janson trúir ekki á guðdóm Jesú Krists. Hann trúir því, að Jesús hafi að eins verið maðr. En hvað á það þá að þýða, eins og hann gjörir, að fara að biðja til guðs í Jesú nafni ? Er það elcki hrein og bein rammpápisk dýrlinga-dýrkan ? Er nokkurt vit í því, frá skynseininnar sjónarmiði, að fara að óska mönnum guðs blessunar í nafni Sókratesar, Konfúcíusar, þorgeirs Ljósvetningagoða, Bjarnar Gunnlaugssonar ? eða Kristofers Jan- sons og Bjarnar Pétrssonar ? Er ekki Jesixs eftir allt saman orð-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.