Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 10.04.1888, Blaðsíða 2

Sameiningin - 10.04.1888, Blaðsíða 2
ar mynclir. þaS eru Realistarnir, sem svo eru kallaðir, skáldin, sem halda sér við hina verðandi tíð eins og hún kemr þeim fyrir sjónir á yíirborðinu. Idealistarnir í skáld- skapnum geta dregið upp ljcimandi málverk, en þau eru sum hver hvergi til nema í þeirra eigin ímyndan. Realist- arnir taka ljósmyndir af tilverunni, en Ijósmyndirnar eru í rauninni ávallt skuggamyndir. Myndin kemr áreiðanlega út, en skuggamynd er það engu að síðr. Og það er nú einmitt þetta, sem þetta nýja skáldakyn er vítt fyrir. það er von, að meira beri á því, sem er ljótt og leiðinlegt, heldr en því, sem er fagrt og yndislegt, í því málverki af hinum jarðneska mannheimi, sem á að sýna hann nákvæm- lega eins og hann er eða birtist á yfirborðinu fyrir rnanns- auganu, því syndin hefir vitanlega runnið inn í hann og hefir hér svo voðalegt ríki. Allt, sem syndinni er háð, er í skugganum, og myndin, sem af því er tekin, sé hún að eins tekin í jarðnesku clagsljósi, eins óg nútíöar-Realistamir yfir höfuð að tala gjöra, hlýtr ávallt að verða skuggamynd. Sumum þykir nú miðr, að Realista-stefnan er á vorri tíð farin að verða ráðandi í skáldskapnum, og einstöku mönn- um virðist hún vera hrein og bein aftrför, og þeir ætla, að hún muni eigi verða til annars en að draga mannlegan anda niðr í saurinn. Og það kann vel að vera, að sumir láti þessa skoðan á tilverunni fara svo með sig, láti hana taka frá sér trú á allt, sem er gott og guðlegt, kippa fótunum undan sínuin kristindómi. Og þá er sannarlega illa að ver- ið. En það á ekki og það þarf ekki að fara svo. Skugga- myndir Realista-skáldanna þurfa ekki fremr að gjöra út af við neinn mann í andlegu tilliti heldr en það í mannlífínu og hlutanna gangi á vorri tíð, sem þessar myrku myndir tákna. Yér þurfum, ef vel á að vera, að horfa á mann- lífið hér í myrkraheiminum með kristnum trúaraugum. Og alveg eins þurfum vér að skoða myndimar af þessu sama mannlífi, sem koma fram í skuggsjá Realistans, frá sjónar- hæð hinnar kristilegu opinberunar. Svo er öilu óhætt, og eng- in ástœða til að harma yfir því, að Realistarnir eru farnir að ráða skáldskaparstefnunni á vorri tíð. Skáldskaprinn eins og hvað annað er í hendi guðlegrar forsjónar. Og

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.