Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.06.1888, Blaðsíða 7

Sameiningin - 01.06.1888, Blaðsíða 7
lendinga, heldr fyrir þá sök, að nú bar svo vel til veiði fyrir henni, að einn Islendingr hefir rétt nýlega hnigið henni í -skaut, sem gefr sig út fyrir evangeliskan prédik- ara. })að mætti segja, að hún liati áðr viljað veita Islend- ingum hér hina andlegu fœðu sína, en að hún hafi ekki getað það fyr en nú; því að hún hafi engan Islending eða íslenzku-talanda mann haft til að „veita á borð“ fyrir þessa útlendinga, fyr en „evangelistinn“ Jónas Jóhannsson barst henni upp í hendrnar. Enda virðist dr. Bryce, sá er nefndr er í annarri greininni úr „Free Press“, sem til fœrð var í upphafi ritgjörðar þessarar, í bréfi upp á fyrirspurn frá nokkrum leiðandi mönnum hins íslenzka safnaðar hér við- víkjandi þessu presbyteríanska kristniboði, gefa í skyn, að hann skoði komu Jónasar sein bending frá forsjóninni um að láta verða af þessu kristniboðsstarfi meðal Islendinga '). En þessi ástœða fyrir nefnda kirkjudeild til þess að hefja nú lcristniboð meðal Islendinga ætti í augum skynsamra manna af fólki voru ekki að vera stórt betri en hin. því að þessi maðr, sem nú á að nota til þess að halda boðskap presbyteríönsku kirkjunnar á lofti meðal Islendinga er, hvoð sem trú hans líðr, svo óheyrilega ómenntaðr og þekbing- arlaus, að hann hlýtr að teljast með öllu óhœfr til að prédika opinberlega, að minnsta kosti fyrir íslenzkuin almenn- ingi. Og vér höfum svo háa hugsan um presbyteríönsku kirkjuna, að vér teljum víst, að liún dirfðist ekki að hafa neinn slíkan mann fyrir prédikara meðal ensku-talanda fólks. En íslendingum má allt bjóða, hugsa þessir presbyteríönsku herrar líklega. Og svo koma þeir sér niðr á því að senda voru fólki Jónas. Off svo keinr hann með annan eins O sálmaslcáldskap til að byrja með eins og þann, er nýlega 1) Hann scgir svo í þessu bréli sínu : ,,As to whether we shall organize an Icelandic congregation, altogether depends on the way in which the Lord may lead us. It seems to us that the earnest young Christian, Mr. Jonas Johnson, having been thrown amongst us, along with his showing a desire to take a full College course for the min- istry, justifies us in affording him facilities for holding services among his people. Should there be no need here for his work, other fields of useful- ness will no doubt be opeíied up.“

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.