Sameiningin - 01.06.1888, Qupperneq 8
—56
gat að lesa í „Lögbergi“ J). það er sannarlega realistisk
skuggarnynd aí' íslenzkum sálmakveðskap — nei, ekki at'
íslenzkum, heldr ameríkönskum sálmaskáldskap, því slíkt
býr þó enginn íslenzkr rímari til, sé hann enn þá hreinn
og beinn Islendingr, og slíkt iiefir aldrei nokkrum manni
komið til hugar að bera á borð fyrir menn í vorri hitersku ís-
lenzku kirkju. En slíkt lætr presbyteríanska kirkjan þennan
sinn „evangelista" bjóða lslendingum hér í staðinn fyiir það,
sem kirkja vor hin lúterska hefir að bjóða þeiin í hinni
íslenzku sálmabók og passíusálmuin Hallgríms Pétrssonar!
þetta ætti nú, rétt um það leyti sem kirkjufélag vort
lieldr ársþing sitt, að vera því og fólki þjóðar vorrar al-
mennt í þessu landi hugvekja um það, live lífsnauðsynlegt
það er fyrir alla kristilega og kirkjulega hugsandi Islend-
inga hér vestra að standa fast sameinaðir í starfi sínu og
O O
baráttu fyrir sínu mesta velferðarmálefni, kristindóminum.
Vér getum staðizt þær árásir, sein hinni veiku kirkju
vorri kunna á ókominni tíð að vera búnar, hvort sem þær
koma frá Faríseum, sem öll sín óþarfaverk þykjast gjöra
guði til dýrðár, eða frá vorrar tíðar Sadúseum, sem í nafni
menningar, frelsis og framfara berjast á móti kristinni trú,
—ef vér, svo margir af oss, sem kirkjunni til heyrum, höld-
uinst í hendr. „Sameiningin" er nafnið á kirkjumálablaði voru,
en „saineiningin" er líka vort sigrorð í baráttunni gegn
öllum þeim öflum, sem vilja gjöra út af við oss.
1) I'arti af þessu sýnishorni, sem stendr í „Lögbergi", npp á sálmakveS-
skap Jónasar er svona, orörétt prentaðr eins og höfundrinn hefir fra gengi'ö:
„Annað efni.
Lag—Guðsson lcallar: Komið til nrín.
Kórónu og konungsrlki,
klárt og fagurt sigurmerki
eignir þar áttu vísar
viltu fara, viltu fara
veg til paradísar. Amen.“
Vfir slikum sálmakveðskap heföi einhvern tíma á íslandi veriö raulaö:
„Ulfar sterki lamdi með lurk,
lýða heyrði mengi;
það ætlaði að verða í götunni slark
updir nróabarði, “ .
J