Sameiningin - 01.06.1888, Side 9
Ferming er nú þetta árið fyrir skömmu af lokiS í
liinum ýmsu íslenzku söfnuðum, sem standa í kirkjufélagi voru
eða sem þjónaS er af prestum, er því heyra til. I Winni-
peg-söfnuði fór ferming fram á hvítasunnunni, en annars
staðar inun henni nokkru áðr hafa verið af lokið, bæði í
Dakota-söfnuðunum, Xýja Islandi og söfnuðum þeim, er
séra N. Steingrímr þorláksson þjónar í nýlendunni íslenzku
umhverfis Minneota í Minnesota. I söfnuðunum í hinni svo
nefndu Argyle-nýlendu, í nánd við Glenboro-járnbrautarstöð,
hér vestr í fylkinu, fór engin ferming fram, en að eins tvö
ungmenni þaðan voru fermd ásamt fermingarungmennum
Winnipeg-safnaðar. Vér höfum enn þá ekki skýrslur í höndum
um það, hve mörg ungmenni hafi fermd verið á hverjum
stað, en vonum að geta skýrt frá því síðar í „Sam.“, enda ætti
skýrslur um fermingar, jafnóðum og þær fara fram í hin-
um ýmsu söfnuðum, framvegis að birtast almenningi í kirkju-
blaði voru. Sé ferming'arundirbúningrinn eins og vér
allir óskurn að hann sé, ]?á þýðir hver einstök ferm-
ing ákaflega mikið fyrir framtíðarlíf safnaðanna og kirkju
vorrar yfir höfuð að tala. það hvernig fermingarundirbún-
ingrinn heppnast hjá oss ræðr því í rauninni fremr en
nokkuð annað, hvernig hér fer um kristindómsmál þjóð-
flokks vors á ókominni tíð. Só ungmennið, sem fermist,
í sannleilca undir fermingar-athöfnina búið, sé hjarta þess
a undan fermingardeginum orðið opið fyrir endrlausnarev-
angelíi kristindómsins, þá má út frá því ganga sem hér
Um bil vísu, að ekki einungis það sjálft grœði stór-mikið
á því að fermast, að því leyti nefnilega, að það bindr sig
nieð fermingunni fyrir alla æfina við náðargjöfina frelsarans, er
áðr var því innsigluð með heilagri skírn, heldr og að
safnaðarfélagið eða kirkjan, sem það til heyrir og sem hefir
leitt það til drottins, verði fyrir ómetanlegum framtíðargróða
um leið og slíkt ungmenni ineð fermingunni kýs sér heiin-
di til æfiloka í þessari sömu kirkju. Fermingin þarf endi-
lega að verða brennipunktrinn í öllu voru kirkjulega lífi.
Verði fermingin lijá oss lítið eða ekkert annað en dauð
seremonía, eins og fleirum sinnum hefir í „Sam.“ verið var-
að við að hún yrði látin verða hjá oss, ])á getr naumast