Sameiningin - 01.06.1888, Side 13
—61
]))■. Talmage í Brooklyn prédikaði nýlega út aí' þess-
um texta í Pg. 2,20: „Sólin skal snúast í myrkr". Hann
byrjaSi íneð því að skýra frá, live nær þetta hefði sam-
kvæint spádómnum átt að koma fram, neínilega uin sama
leyti og Jerúsalem var lögð í eyði, og svo gat hann þess,
að sagnaritarinn Josefus segöi frá því, að þessi spádómr
hefði bókstaflega rœzt. Ýinsar undarlegar loftsjónir liefði
þá sézt og meðal annars það, að sólin hefði um stund liorf-
ið eða misst alla birtu. Út af þessu tók hann til að sýna
fram á, hvílíkr dauði hlyti að koina fram hér í náttúr-
unni, ef sólin myrkvaðist algjörlega. En svo kemr aðalefni
rœðunnar, sem var að sýna fram á, hvernig fara hlyti hér
í mannheiminum á jörðinni, ef guðleysmgjunum og kristin-
dómsféndunum tœkist að koma fyrirætlan sinni fram : að
gjöra út af við hina lcristnu trú, snúa hinni andlegu sól vorri
í myrkr. Toekist þeim að leggja Jerúsalein, borg liins lif-
anda guðs á þessari jörð, hina kristnu kirlcju vora, í eyði,
þá myndi voðalegt dauðamyrkr falla yfir allan heim.
Hann vildi sýna, hvílík sú tragedía, væri, sem vantrú-
arpostularnir væri að leika á vorri tíð. Hann vildi sýna,
hvað lilyti að veröa úr mannfélaginu, ef þeim toekist að
deyða kristindóminn.
Fyrst myndi, sagði hann, kvennþjóðin öll verða fótum
troðin, svift öllum lieiðri og öllum mannlegum réttindum.
Og virtist honum þetta lægi svo opið fyrir, að það þyrfti
eiginlega alls ekki að sanna. Ekki þyrfti í rauninni annað
en bera saman kjör kvenna í kristnum og kristindóms-
lausum löndum; ekki þyrfti annað en athuga, hver kjör
kvenna hefði verið meðal forfeðra vorra áðr en, kristin-
dómrinn kom til þeirra og hver þau væri nú. I Birma
á Austr-Indlandi selja menn konur sínar eins og gripi.
Meðal Hindúa má kona ekki hlusta á söng eða liljóðfœra-
slátt, ekki líta út úr húsglugga sínum, só maörinn ekki
með, og maðrinn þarf ekki aðra sök frain að bera, til þess
að hafa rétt til aö skilja við konu sína, en það, að hún
hafi teicið til matar áðr en hann hefir lokið sinni máltíð.
I Kína eru meybörn borin út að eins fyrir þá sök að þau
eru meybörn. Konum er í hinum heiðnu löndum mis-