Sameiningin - 01.09.1888, Síða 3
—107—
þá er þetta skilyrSi var sett, að það væri öröugt a<5 vera
kristinn niaðr í prótestantiskum og lúterskum skilningi,
svo framarlega sem maðr gæti eigi a£ eigin lestri guðs orðs,
persónulegri skoðan ritninganna, rannsalcað þann lærdóm,
sem kirkjan heldr fram, og þannig meir og nieir fengið
sjálfstœða sannfœring fyrir sínum barnalærdómi. Hvernig
hefði Gyðingarnir í Berróa, sem þeir Páll postuli boðuðu
kristni, eins og segir í Post. gjörn. (10, 11), átt að geta
vitað, hvort sá boðskapr, er postularnir boðuðu þeim, væri í
samhljóðan við spádómana í gamla testamentinu, þeirra eig-
in bamalærdómi, hefði þeir verið ólæsir og ekki sjálfir get-
að rannsakað ritningarnar ? Og hvernig á enn þann dag í
dag sá maðr að geta rannsakað ritningarnar og vaxið að
sjálfstœðri þekking á guðs orði, sem ekki með eigin lestri
á þess kost, að skoða sjálfr það, sem ritað stendr ? Vor
kirkja er rneð' frjálsri rannsókn, og ])cgar hún heimtaði, að
allir þeir, sem fermast ætti, skyldi læsir vera, þá gjörði
hún það af því að hún ekki að eins leyfir, heldr heimtar
af öllum sínum limum frjálsa rannsókn. Vor kirkja vill
ekki blinda trú, vill ekki, að neinn sinn limr vaxi svo
upp til fullorðins ára, eða gangi svo í gegn um lífið fram
til elliára eða æíiloka, að hann að eins lifi andlega á
lánuðum sannfœringum annarra manna. En það eru nú
þeir allir að mestu leyti neyddir til að gjöra, sem ekki
geta sjálfir lesið. ])ess vegna er svo til ætlazt hjá oss, að
enginn sé fermdr fyr en hann er orðinn læs.
En eru þá allir Islendingar læsir ? þeir eru yfir höfuð
að tala allir fermdir, sem fullorðins aldri hafa náð, — allir
nema fáeinir einstaklingar, sem hér í landi hafa lent rit
úr hinum kirkjulega hópi vorum, og í ])essu sambandi koma
þeir alls elcki til greina. En eru þá hinir allir, allir þeir,
sem heima á Islandi eða hér hafa fermdir verið, læsir ?
Flestir munu svara þessari spurning hiklaust játandi, og
möi'gum þykir líklega eklcert vit í því, að koma með slíka
spurning; og vér göngum að því vakandi, að sumum
þyki þjóðflokki vorum gjörð óvirðing með því að spyrja
svona. En vér höfum komið hér með spurninguna af því
að oss finnst hún vera alveg nauðsynleg. Og vér svörum