Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1888, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.09.1888, Blaðsíða 11
—115— ar umrœSur og langar rísu út a£ því, hvort séra Páll skyldi, sökum veikinda sinna, undan þeginn því að vera prestr safnaöarins eSa ekki. „Fleiri virtust meina svo, sem þeir vildi heldr vera án prestsþjónustu œSi-lengi í von um heilsubata séra Páls, heldr en aS vera í útveguin um ann- an prest í hans staS. ASrir létu í ljósi, aS þeim þœtti ofætlan fyrir jafn-heilsulausan mann sem séra Pál, aS ann- ast um prestsembættiS einsamall, af því nausyn bæri til fullkomnari prestsþjónustu en hann væri fœr um aS veita. þessir báru fram þá uppástungu, hvort ekki mundi bezt og nauösyn á, aS reyna aS útvega annan prest og þaS sem allra fyrst.“ En dagrinn entist mönnum ekki, svo fundin- um var frestaS þangaS til 25. Janúar, eftir að fimtn manna nefnd hafSi veriS kosin, til þess aS íhuga mál þetta.—Fyr- ir fundinn 25. Jan. var lagt eftir fylgjanda ávarp frá séra Páli: — ,,Kæru safnaðarlimir i Víkr-sókn! A ársfundi vorum þ. 4. Janúar þ. á. hreiföi eg þeirri spurning, hvort eigi myndi réttast, að eg væri með öllu laus viö prestskap á meðal yðar, en kvaðst jafnframt eigi þora að segja af mér embætti, nema því að eins að það væri ósk safnaða minna.—Síðan hefir mér gefizt fœri á að íhuga mál þetta betr, þar sem eg bæði hefi getað haft fyr- ir mér undirtektir fundarins, hefi heyrt álit nefndar vorrar í því máli og auk þess þær málalyktir frá Tungár-söfnuði og Park-söfnuði, að þeir óska, að eg sé alveg laus við embættið hjá þeim, nema hvað Park-söfnuðr mæiist til, að mega leita mín til nauðsynlegustu prestsverka, að því leyti sem heilsa mín leyfi, á meðan annar prestr ekki fáist. Til þess nú að reyna að hrinda máli þessu í ákveðið horf, og það horf, sem mér þykir liggja beinast og eðlilegast við, að öllu vel yfirveguðu, þá leyfi eg mér að gefa yðr eftir farandi ráð: 1. Að forseti lesi upp liátt trúarjátningar vorar og síðan gæti að, hvort allr fundrinn eða þá hverjir vilja játa og halda þessari trú. 2. Sé þar næst lesin upp safnaðarlög vor og þá og komizt eftir, hvort all- ir eða hverjir vilji eiga þau og vernda sem félagsreglu sina hér í kirkjunni. 3. Komi menn sér saman um að reyna, ef mögulegt væri, að fá kandídat theol. Hans Thorgrímsen, sem mun, ef guð lofar, út skrifast næsta vor úr sama skóla og eg fyrír 7 árum, sem aðstoðarprest rninn (ef menn svo vilja), en skora jafnframt á hina söfnuðina, að komast sem allrtl fyrst eftir, hvort, hve nær og með hvaða kjörum þeirra kandídatar muni verða fáanlegir. 4. Sé 3 manna nefnd kosin með seðlum til þess í sameining við mig bæði að komast eftir, hvernig á statt er með vorn kandídat og siðan ásamt nefndum frá hinum söfnuðunum semja frumvarp til allra safnað- anna um, hvern af þessum kandidötum mitni hentast að kjósa.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.