Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.01.1889, Page 3

Sameiningin - 01.01.1889, Page 3
—171— nú reglulega á hverri viku fyrir þeim íslenzku sálum, er þangaS safnast, og fyrir jól sagði sá, sem stendr á bak við þessa presbyteríönsku veiðivél í einu af dagblöðum bœjarins, að búið væri þar að „snúa“ nokkuð á 4. tug íslend- inga, og uin leið lýsti hann yfir því, að nú úr þessu myndi þeir reka þetta kristniboð sitt með ákefð. Og eins og við mátti búast eru þessir presbyteríönsku herrar eklci að eins að hugsa um að ná Winnipeg-íslendingum á sitt band eða, eins og það er kallað á þeirra mállýzku, að „frelsa sálir“ þeirra. Áformið er, að senda annan þessara „umsnúnu" brœðra hið fyrsta út til fólks vors í hinum ýmsu íslenzku nýlendum viðsvegar um landið, til þess að leiða það frá hinni lútersku villigötu og gjöra það, ef unnt væri, „umsnúið“ líka. Til þess að lesendr vorir geti haft hugmynd um, hve samvizkusamlega er unnið að þessu trú- arboöi skal þess getið, að fyrir nokkru birtist grein eftir dr. Bryce í presbyteríönsku kirkjublaði einu, sem út er gefið hér í Canada, þar sem hann er að frœða trúarbrœör sína um þetta sitt afreksverk, og sem ástœðu fyrir því, að á þessu hafi verið byrjað, tilfœrir hann það, að pré- dikanin í lúnni ísl. lútersku kirkju hér í Winnipeg sé svo köld og óevangelisk, að slíkt dugi með engu móti. Og með þennan vitnisburð kemr hann, þótt hann auðvitaö skilji ekki eitt orð í íslenzkri tungu, hafi aldrci stigið fœti sínum inn fyrir dyr ísl. kirkjunnar í Winnipeg né neinnar ísl. kirkju, og viti naumast meira um, hvað fram fer í kirkju vorri ytír höfuð heldr en um það, sem gjör- ist í tunglinu. Blaðið „Lögberg“ birti þessa grein í ís- lenzkri þýðing og lét þar með fylgja langa og all-hvassa ritgjörð frá sjálfu sér, þar sem þessi tilraun til að umturna fólki voru er dregin fram fyrir almenning, og alveg flett ofan af þessu svo kallaða kristniboÖi. All-miklum hluta þessarar „Lögbergs“-ritgjörðar var svo snúið á ensku og hún látin koma út í Winnipeg-blaðinu „Free Press“; þetta gjörðu sömu mennirnir, sem síöastliðið vor í nafni ísl. kirkj- unnar gengu á fund dr. Bryce í því skyni að koma fyr- ir hann vitinu með tilliti til kristniboðs hans meðal Is- lendinga (sbr. Júní-nr. ,,Sam.“). Og létu þcir hinni þýddu

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.