Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.01.1889, Side 10

Sameiningin - 01.01.1889, Side 10
■178— þá er Trajan keisari áriS 107 var í hinum fyrsta leiíSangri sínum gegn Pörþum, tók hann eftir því, hvílíkr grúi af Gyðingum barðist á móti honum í Parþa-hemum og með hvílíkri heift þeir börðust. það var hjartans yndi fyrir þá, að berjast gegn „Edom". Keyndar varð Trajan hér sem ella fjandmönnum sínum yíirsterkari, og hann hélt sigrhátíð út af þessum heppilegu vopnaviðskiftuin. En eigi leið á löngu áðr en hann sannfœrðist um það, að austr- lendingar voi-u ekki kúgaðir til fulls með þessu. því fór mjög fjarri. í kyrrþey var undirbúningr gjörr til voðalegr- ar uppreisnar, er Gyðingar urn öll lönd tóku þátt í. Parþ- ar urðu fyrstir til að láta á sór bæra. Og móti þeim sneri þá líka hinn sigrsæli keisari vopnum sínum, og hóf með því hinn annan leiðangr sinn gegn Pörþum árið 115. það var ógrlegr herafli, er hann dró saman við austrtak- mörk Rómaveldis. En þá urðu þar af leiðanda vestrlönd ríkisins varnarlítil. Og nú gaus uppreisnareldrinn upp. Gyðingar gripu til vopna í ýmsuin hlutum ríkisins, og með miklu meira œðisgangi cn hugmynd verðr fengin um af vanalegum mannkynssögum. Herskararnir úr Afríku- Iöndunum voru komnir langt austr í Asíu. A norðrströnd Afríku, í Kýrene (Sýrene), veltu Gyðingar sér yfir Grikki, er rétt áðr höfðu beitt við þá hlóðugum rangindum, og hjuggu þá niðr. 22 þúsundir rnanna týndu lífinu. Her- skarar Gyðinga, er af eigin hvöt liöfðu gripið til vopna, óðu út úr landinu í tveim aðskildum stórhópum, er hvor um sig hafði sinn eigin herforingja. þeir stefndu austr til hins forna föðurlands síns. Grikkir í Alexandría hefndu harðlega á Gyðingum þar fyrir það, sem landar þeirra höfðu gjört í Kýrene. Við það jókst hinum austr-faranda Gyðinga-her lið. Sá her óx eftir því sem hann brunaði áfram eins og snjóflóð. Um sömu mundir risu Gyðingar upp á Kýpr og eflaust einnig í Litlu-Asíu. Á Kýpr tóku þeir lífið af nálega 250 þúsundum Grikkja. Meðan stóð á þessum hræðilegu manndrápum hefir hugsanin eflaust ver- ið sú, að hinir gyðinglegu upphlaupsmenn úr ýmsum átt- um, sein naumast munu hafa orðið taldir, — svo mikil var mergð þeirra, — skyldi mœtast í landinu helga, til þess þar

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.