Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1890, Qupperneq 9

Sameiningin - 01.12.1890, Qupperneq 9
velja hiS gó8a og rétta, en hafna hinu illa og ranga. Viljinn heíir afar-mikið vald. Með guðs hjálp getum vér komið nálega öllu því góðu til ieiðar, sem vér viljum. Viljinn veitir oss trúna og cilífa sælu, því, ef vér viljum getum vér trúað á guð og frelsara vorn og orðið eilíflega. sælir fyrir náð og aðstoð hins þríeina guðs. Viljinn er ein hlið af guðs-mynd mannsins. Vegna hans erum vér í ætt við guð, œðri verur en öll önnur dýr jarðarinnar. Ofdrykkjan eitrar og veikir allt hið andlega líf manns- ins. Hún reynir að afmá guðs-mynd mannsins og gjörir hann jafnan dýrunum eða enn verri. O'drykkjan eyöileggr s k y n j a n i n a. Vitið hverfr í hvert skifti, sem maðrinn drekkr sig dauðadrukkinn. Og því oftar sem hann drekkr sig drukkinn, því magnminni verðr hugsun hans. Hann hættir smátt og smátt að bera skynsamlega umhyggju fyrir lífi sínu. Víndrykkján gleypir upp allar eignir hans, og hann og þeir, sem honum er trúað fyrir, komast á vonarvöl. Ofdrykkjan sljóvgar einnig t i 1 f i n n- i n g lians. Kærleikrinn til guðs og manna slokltnar smátt og srnátt í hjarta hans. Hann missir tilfinninguna fyrir þeim, sem guð hetír honum á hendr falið. Hann h rðir eigi um, þótt hann þeiöi óhamingju yfir þá. Vínmóðan hefir blindað svo augu hans, að hann ekki sér hin höfgu tár, sem renna niðr hinn bleika vanga konu hans. Hið ólganda vín setr slíka suðu fyrir eyru hans, að hann heyrir ekki til barnsins síns, sem grætr af hungri í kjöltu móður sinn- ar. Og ef barnsgrátrinn ryðr sér braut gegnum vínsuðuna að eyra föðursins eða hin fljótandi augu hans grilla í tár móðurinnar, þá hefir það stunduin borið við, að hönd drykkjumannsins hefir fallið -þungt á hinn bleika vanga eða hið litla höfuð, svo að tárin hafa blandazt blóði. Og þegar svo drykkjmnaðrinn raknar úr rotinu, þá hefir hann engan frið fyrir. ásökunum samvizkunnar, þangað til hann aftr drekkr hana drukkna á víni syndarinnar og að síð- ustu svæfir hana algjörlega. því oftar sem drykkjumaðr- inn drekkr, því dýpra sem hann sekkr, því magnlausari verðr v i I j i hans, því erviðara á hann með að reisa sig

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.