Sameiningin - 01.12.1890, Síða 11
155—
endr eiga ekki heldr a‘<5 elska sterka drykki, svo að ]?eir
ekki drekki og gleymi lögunum og rangfoeri málefni hinna
aumu“ (OrSskv. 31, 4—5). Gamla testamentið’ talar móti
ofdrykkjunni mörg áhrifamikil orð; nýja testamentið gjörir
hið sama. Frelsarinn segir sjálfr: „En gætið yðar, að
hjörtu yðar ekki oíþyngist við óhóf í mat og d r y k k eðr
búksorg, svo ekki komi þessi dagr yfir yðr óvart (Luk.
21, 34). þessi orð skýrir postulinn Páll, ei hann segir: „Og
drekkið yðr ekki drukkna í víni, því að í því er andvara-
leysi“ (Efes. 5, 18), Hann telr drykkjumennina meðal
verstu óbótamanna, meðal þjófa og ræningja, og segb’, að
drykkjumenn „muni eigi guðs ríki erfa“. — þá kalla eg
fram annað vitnið mitt, og það ert þú, saga. óSegðu mér,
saga : Hefir þú á dauðra lista þínum nokkra þá menn, sem
ofdrykkjan hafi steypt niðr í hina myrku gröf ? Eg hcyri
þig svara með grátklökkum rómi: því miðr er t.ala þeirra
manna þúsundir þúsunda bæði frá gömluvn og nýjum tím-
um. Og meðal þeirra eru rnargir þeir menn, sern hafa borið
af fiestum öðrum að andlegu og likamlegu atgjörvi. það
er-sorglega satt, að þeir hafa hnigið fyrir öiyuui vínguðs-
ins, 'sem engin önnur vopn virtust bíta. I þeirra töln eru
mörg skáld 02 listámenn. En sesðu mér, saga: Hve nær
hafa flest illvirki verið unnin í heiminum, og hverjar bafa
verið orsakir þeirra ? Eg heyri þig svara: I ölceði hafá
lang-flest illvirki verið frainin í heiminum, 0g eg þekki
enga tegund glœpa eða illgjörða, sem eigi hati verið fram-
in í ölœði. Oft hefir morðhnífrinn leikið í höndum drykkju-
mannsins. Oft hefir honum í ölœðinu verið miðaö á hjarta
í móður, fööur, konu, barni, bróður eða systur. Oft hefir liönd
drykkjumannsins brotið lásana og stolið eigum náunga síns.
A minnisblöðum mínurn, segir sagan, stendr mörg hryllileg
frásaga um ofdrykkjuna, t. a. m. um drykkfelda, ölóða harð-
stjóra. Yfir h.öfuð að tala sýna minnisblöð sögunnar, að
enginn iöstr er jafn-skaðlegr þjóðfélaginu og ofdrykkjan.
— Að síðustu ieiði eg fram þriðja fiokk vitna minna. Eg
spyi' alla þá, sem , heyra eða eða munu heyra orð mín :
Hvað segið þór um ofdrykkjuna? þér segið og hljótið að
segja; Guðs p.'L ragan og lífsreynsla allra manna er sam-