Sameiningin - 01.01.1892, Side 2
av barninu ltefur í foreldrahúsunum verið kennt að biðja,
um leið og það fjekk vit til þess, og það hefur lærí að
láta hjarta siLt hvíla við hjarta frelsarans þangað til það
er orðið 14—-15 vetra gamalt, verðnr fermingin fyrir það
barn það, sem hún ætti að vera fyrir hvert barn, — sttið-
festing hjartans í trúnni.
Hvernig stendur á því, að fermingin hefur svo lítil
vnranleg áhrif í mörguin tilfellum? Er það vegna þess að
presturinn vanræki skyldu sína? Er það af því, að upp-
fræðsla hans og ieiðbeining í kristindóminum hafi engin
vekjandi áhrif á trúarlíf barnsins? þegar presturinn ekki
gjörir skyldu sína, þegar fræðsla hans er köld og oll á-
herzlan er lögð á hið ytra, ekki spurt um neitt nema
kunnáttu og skilning á því, sem lært er, þá er hann hjer
í mjiig mikilli sök og þá rækir hann illa þá skyldu em-
bættis síns, sem hann ætti að láta sitja í fyrirrúmi fyrir
flestum öðrum. En það vanrækja naumast aðrir prestar
þcíssa skyldu en þeir, sem liðið hafa skaða á sinni eigin
trú. það er óhugsandi að sá prestur, sem lifir í stöðugri
bæn til frelsara síns um krapta og styrk af bimni til að
gegna sinni háleitu köllun eins vel og hann frekast má,
leggi ekki alla þá alúö, sem hann á til, við undirbúning
ungmenna þeirra undir ferminguna, sem foreldrarnir og
söfnuðurinn trúir honum fyrir. Hann veit, að hann ber
ábyrgð á þessum sálum, sem drottinn hefur gefið honum
til að kveikja hjá ljós eilífs lífs. Og þessi ábyrgð er
honutn svo þung og óttaleg, að hún knýr hann áfram til
að lcysa þetta eins vel af hendi og honum er unnt. Sarnt
sem áður mun hver trþlyndur prestur finna til þess, að
hann hefði átt að gjöra þetta betur, jafnvel þegar hann
liefur gjört sitt hið bezta.
En orsökin til þess, að áhrif fenningarinnar verða opt
svo lítil hjá unglingunum, liggur í allmörgum tilfellum hjá
foreldrunum. Sá kristindómur, sem prest urinn leitast við
að innræta hinurn un-ru, fær enga eða alveg ónóga næring
á heimilunum. það eru allt of fáir foreldrar, sem kenna
börnunum sínum að biðja. Og það er almennt viöurkennt
af foreldrum meðal fólks vors hjer, að það sje hjer miklu